sunnudagur, október 22, 2006

Heil og sæl

Allt gengur eins og í sögu hérna hinum megin, vinnan er eins og hver önnur. Ég vakna klukkan hálf fimm á mánudagsmorgnum (eftir rúma 5 tíma) og tek lest niður til Salisbury og keyri þaðan til Bognor Regis þar sem ég bý 5 daga vikunnar með fjórum mönnum.

Annars eru hvalveiðar efst á baugi en þær fara mjög misvel í Englendinginn. Í Sjálstæðinginum um helgina var heljarlöng grein um ágæti Íslands sem vegur upp á móti gagnrýninni svo ég hef ekki orðið fyrir neinu teljandi aðkasti, ef frá eru taldir sendir tölvupósts linkar frá enskum umhvefis- vinum mínum sem fussa og sveia og setja ruslið sitt í sjö mismunandi ruslafötur og fjórblessa sig þegar ég læt vatnið renna til að verða kalt.

Langaði bara að láta heyra í mér, þarf nauðsynlega að komast í ból svo ég geti fyrir borið kennsl á mannvistarleifarnar í fyrramálið og týnt bronsaldar tinnurnar frá seinni tíma rusl steinum.

lifið í lukku en ekki í krukku!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim