Jahérna hér hvað það er gaman að vera ekki í skóla, samviskubitslausar helgar og kvöld, sjónvarpsgláp, krossgátuleysingar og skáldsögur (og smá bjór inn á milli)!!
Ég fór aldrei til Norwich, hætti í þeirri vinnu áður en hún byrjaði af því að mér bauðst þriggja mánaða samningur við Wessex arch. sem eru öllu nær en Norwich. Síðustu viku eyddi ég því fyrir utan Aylesbury í Buckinghamshire að moka og moka og moka og ó mæ god hvað það er erfitt að moka blautan leir með 10 blöðrur á fingrunum og svo miklar harðsperrur að það er vont að anda... kvarti kvart. Bráðum verð ég örugglega að breyta titlinum á síðunni í Gústa granna, eða kannski ekki.....
Ég flutti heldur aldrei inn í sætasta húsið í Bristol og hef ákveðið að búa áfram hjá Töru og Angelu í Hotwells hverfinu, sem er prýðilegt!
Sem sagt hið ljúfa líf og nú ætla ég að fara út og njóta samviksubitslauss laugardags, ég þarf að kaupa blaðið snæri og nagla ... það er allt og sumt!!
Njótið helgarinnar!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim