Sæl og bless elskurnar!
Jæja nú er þetta bara búið, skilaði ritgerðinni fyrir viku!
Ég er flutt til Töru og Angelu vinkvenna minna og það fer mjög vel um mig (þær eiga stórt sjónvarp og um daginn horfði ég á Americas next topm. svo Britains next topm. og svo tvo CSI þætti í röð - það var nú gott kvöld).
Ég er komin með vinnu í október í Norwich sem mun vonandi leiða til meiri vinnu ef ég stend mig vel og ég er búin að finna sætasta húsið í Bristol sem mig langar að búa í og leigusalinn er búina að setja það á "hold" í huganum fyrir okkur Sophie. Svo það er bara allt að smella saman.
Takk kærlega fyrir stuðninginn og kveðjurnar hér að neðan, þær hjálpuðu mér svo sannarlega á lokasprettinum!
Nú ætla ég að skella mér í Ikea og hjálpa Jim vini mínum að græja sig upp og kaupa nokkra poka af sænskum saltlakkrís til að gæða mér á í ómennskunni
kærar kveðjur yfir hafið (jú og suður til Bournemouth)!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim