Enginn vildi skrifa pésann svo ég verð að gera það sjálf!
Þolið er að renna í sandinn, tvær vikur í skiladag. Það mætti kannski halda að stressið væri í hámarki en kæruleysið hefur tekið öll völd. Nú er ég komin aftur til Bristol í sumar og sól og ég spóka mig um í kjólum og pilsum, drekk kaffi og ræði vandamál heimsins við þá fáu skólafélaga sem hafa skilað sér aftur. Svo sef ég bókstaflega hálfu sólahringana. Ég hef nú reyndar líka staðið í atvinnuleit sem fram að þessu hefur skilað sér í einu tilboði sem ég þekktist með fyrirvara.
En betur má ef duga skal!!
Bráðum kemur betri tíð með Íslendinga á hverju strái, Tótu og Matta í tæpra tveggja klukkustunda fjarlægð og Ara Klæng í kallfæri og þá er vonandi að ég verði orðinn meistari með vinnu og þak yfir höfuðið.
bestu kveðjur úr kæruleysinu sem vonandi er í rénun,
Bústna (sem varð bústnari á Íslandi), komin aftur til Bristol.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim