mánudagur, september 04, 2006

Kæruleysið rénaði og raunveruleikinn hefur tekið öll völd. Ég er í mjög viðkvæmu jafnvægi, afar stutt í tárin. Ritgerðin hefur tekið yfir líf mitt, sofandi og vakandi hugsa ég ekki um annað og á erfitt með að ímynda mér eitthvað mikilvægara. Ég veit þó að það er svo margt sem er það....
15. september vekur með mér kvíðasting og tilhlökkun í senn. Ausið nú úr viskubrunnum ykkar í kommentagluggan til að koma mér yfir síðustu metrana, þið hafið nú svo mörg staðið í sömu sporum. Ég er farin upp í rúm til að reyna að sofa eitthvað í hausinn á mér. ARGGGHH

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim