"hvað hangir í hnakkólinni Snorri? Kæft kjöt eða önnur matvara til að gera skólavistina bærilegri? Einhverja landaura, gjaldgenga vöru, eða peninga hefurðu .... kerti og pappír þarftu að kaupa og kjöt, brauð og mjólk fá einungis þeir skólasveinar sem geta goldið fyrir"
Langar einhvern að vita hvað var í hnakkól Snorra?
Ég held að Snorri hljóti að hafa verið með krítarpípur, kínverska postulíns skálar, blýglerjaða diska og steinleirs krukkur frá Þýskalandi. Svo var hann örugglega með perlur um hálsinn og í vesti með koparhnöppum og silfurhring á baugfingri - nú og kannski gullpening í vasanum. Skeiðar og kamba geymdi hann í brjóstvasanum ásamt tóbakinu. Nei það meikar ekkert sens er það ? Hann var nú bara ölmusupiltur úr Borgarfirðinum... en mér er nú næstum farið að standa á sama. Bölvað óréttlæti í þessum veðurguðum, rignir eldi og brennisteini á meðan ég hamast með skóflu og hjólbörur og svo skín sólin sem ALDREI fyrr þegar ég fer inn með bókastaflann....
Ef einhver er í sumarfríi og langar að skrifa þennan pésa fyrir mig þá lýsi ég stöðunni lausri hér með.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim