

Sælt veri fólkið...
Nú er kominn sunnudagur númer tvö í hitabylgjunni í Englandi, sjómannadagur á Íslandi. HM skollið á af fullum krafti, drukknir Englendingar á hverju strái, fáklæddir, blakandi rauðum og hvítum fánum og syngjandi vísur.
Ég og Hildur héldum okkar eigin HM í hogm (hahaha) .....
Búnar að skemmta okkur konunglega, kvörtum reglulega yfir hitanum en dásömum hann í sömu mund, berum á okkur sólarvörn sem rennur jafnharðan af með svitanum. Fjórir dagar í heimkomu, sjáumst þá!! Við erum hlaupnar út í blíðuna.
ps. þar sem við erum bara tvær fæst ekki mynd af okkur saman!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim