Sæl á ný!
Ég er komin heim til Bristol, eftir tveggja vikna dvöl í Ashton Under Lyne, rétt fyrir utan Manchester, kom reyndar heim síðustu helgi en kom því ekki í verk að blogga.
Ég er búin að vera lesa heilmikið um konur í seinni heimsstyrjöldinni og hefur mikið verið hugsað til þess hvað ég er heppin að hafa fengið öll þau tækifæri sem mér hafa boðist í lífinu. Ég hef aldrei þurft að berjast fyrir því að fá að fara í skóla, ferðast einsömul eða vinna fyrir utan heimilið. Það er víst að formæður mínar hafa ekki fengið tækifæri til að gera allt sem ég hef gert og ég skulda öllum þeim sem á undan komu að nýta mér þá möguleika sem mér standa fyrir dyrum... Bara svona pæling sem er gott að hafa í huga þegar maður verður kvíðinn eða latur...
Ég hélt upp í ferðina til Manchester eldsnemma morguns í nýju stáltáskónum mínum og með nokkur fiðrildi í magnaum. Á leiðinni á lestarstöðina flaug mávur yfir mig og gerði sér lítið fyrir og skeit á nýju skóna mína, vestið og buxnaskálmina. Ég strauk hendinni hikandi yfir höfuðið á mér og var létt þegar ég komst að því að hausinn hafði sloppið. Ég ákvað að taka þessu með stóískri ró og túlka skítaslummuna sem boð um lukku og velgengni. Í lestinni urðu fiðrildin fyrirferðarmeiri og náðu hámarki þegar ég tók rangan sporvagn í Manchester.
En ég komst á leiðarenda og allt gekk vel. Vinnan var bara skemmtileg og gaman að vakna snemma fara í vinnu og koma heim þreytt á kvöldin í stað þess að vakna um miðjan morgun og sitja á afturendanum allan daginn.
Nú styttist í að Tóta og Matti mæti á svæðið, ég hlakka rosa til að hitta þau. Þau eru svo gott sem komin inn í skóla hérna megin hafsins næsta haust og ég ætla að reyna að gefa þeim nægar ástæður til að hlakka til að flytja til Englands og búa í þessu ágæta landi.
Hún mamma mín á afmæli í dag, til hamingju með daginn!!! og svo verður hún Hildur litla tvítug á morgun. Til hamingju til þín líka Hildur mín.
ps. setti inn nýjar myndir í albúmið, úr jólafríinu mínu á Íslandi... soldið langt síðan en skemmtilegar myndir!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim