fimmtudagur, mars 16, 2006

Sæl öllsömul!

Ég er búin að vera óvenju löt að blogga undanfarna daga. Hef svo sem enga sérstaka afsökun. Fór til London síðasta föstudag í heimsókn til Freyu og James vina minna. Ég tók rútuna þangað og var komin um miðjan dag og hafði því nokkrar klukkustundir til að drepa áður en þau skötuhjú kæmu heim úr vinnu. Takmark mitt var að komast í góða bókabúð og kannski fjárfesta í nokkrum bókum en á leiðinni þangað þurfti ég að skipta um neðanjarðarlest á Oxford Circus og þá heyrði ég kallað í fjarska.... komdu í Topshop og verslaðu þér frekar föt, þig vantar einmitt gallabuxur.... svo ég svaraði kallinu!!
Þar sem ég rölti kæruleysislega um Topshop var mér hugsað til ársins 1999 þegar við vinkonurnar fórum til London og keyptum hálfa búðina, ég reyndi hvað ég gat að endurlifa spennuna en það bara var ekki eins. En með buxur og bol og fjögur þúsund krónum fátækari, yfirgaf ég Oxford Street.
Ég var svo í London fram á þriðjudag í góðu yfirlæti og ofurleti.

Annars er það helst af mér að frétta að mér var boðin vinna í tvær vikur í Manchester, byrja næsta mánudag (það var með það í huga sem ég leyfði mér að kaupa föt). Já þeir lofa mér heilum 290 pundum á viku plús 12 pundum á dag í dagpeninga og borga lestarfarið og gistingu. Ekki slæmur díll en ekki reyna að breyta pundunum í krónur, þá verðið þið fyrir vonbrigðum. Þeir eru ekkert sérstaklega örlátir breskir atvinnurekendur. En góð reynsla fyrir mig og vonandi stend ég mig vel og fæ þá kannski meiri vinnu í framtíðinni - en það er draumurinn eins og er að vinna hérna megin hafsins í a.m.k ár eftir að gráðunni lýkur. Á morgun þarf ég að fara í verslunarleiðangur og kaupa það sem ég hef fengið tilmæli um að koma með: 7,5 m málband, skala-reglustiku, blýanta og skó með stáltá....

Bestu kveðjur frá Bristol til ykkar allra!!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim