mánudagur, mars 06, 2006

Viðburðarík helgi
Ég hef verið á ferð og flugi þessa helgina sem var ótrúlega skemmtileg. Á föstudaginn fór ég alla leið til Stoke on Trent með Töru, Angelu og Lisu að skoða safn þeirra Sokebúa. Bærinn var með þeim daprari sem ég hef heimsótt en safnið eitt af þeim allra bestu. Eitt sinn voru Stokarar rosa ríkir og framleiddu leirtau í tonnatali og á safninu gefur að líta fallegustu diska og bolla sem ég hef séð. Toppurinn var svo að fara í verksmiðju verslun Spode þar sem hægt er að kaupa leirtau á fáránlegu verði með munstrum sem fyrst voru framleidd þegar Íslendingar borðuðu úr öskum. Ég keypt bara gjafapappír með mynd af bollum en þegar ég verð pínulítið ríkari mun ég fara og kaupa stell.
Á laugardagskvöldið fór ég svo á Louisiana og sá tvær frábærar hljómsveitir The apartment og boykillboy með Sophie. Mjög skemmtilegt kvöld í Bristol sem endaði á pizzuáti undir miðnætti.
Á sunnudagsmorguninn lagði ég svo upp í aðra ferð að þessu sinni til Brighton með Lisu, Chris og Sophie. Við komum við hjá Stonehenge, tímdum reyndar ekki að borga okkur inn og horfðum því á þetta stórkostlega mannvirki í gegnum girðinguna. Ég varð fyrir smá vonbrigðum, það var eitthvað svo lítið, en samt tilkomumikið. Þegar við komum svo til Brighton sátum við á ströndinni og horfðum á sólina setjast. Ótrúlega gott að anda að sér fersku sjávarlofti. Svo fórum við að sjá austur evrópsku gipsy punk sveitina Gogol Bordello og það var sko upplevelse!!! Svo keyrði Chris okkur alla leiðina aftur heim meðan við sváfum í aftursætinu.
En nú er kominn mánudagur og ég þarf að fara í skólann, sem verður örugglega skemmtilegt en ekki eins og leirtau og hljómsveitir... en það eru ekki alltaf jólin!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim