Nú er ég döpur....
Í morgun vaknaði ég með bros á vör og hringdi í mömmu áður en hún fór í messu til að fá vatnsdeigsbolluuppskrift. Svo fór ég út í miðdegisverð með stelpunum og kom við í búðinni á leiðinni heim. Ég keypti mæliglas, písk, hveiti, smjörlíki, rjóma, egg og súkkulaði og hélt heim á leið.
Veit nú ekki hvort ég hef kvartaði yfir þessu áður, á þessum vettvangi, en meðleigendur mínir eru ekki þeir þrifnustu svo áður en ég gat hafist handa við bakstur, þurfti ég að þrífa eldhúsið. Ég ryksugaði, vaskaði upp og þreif ofninn (sem var ekki lítið mál). Svo hóf ég bollugerð á meðan sólin skein inn um eldhúsgluggann og ljúfir tónar streymdu úr tölvunni minni..... því er skemmst frá að segja að nú er yndælis ilmur í eldhúsinu og deig/bollur í ruslinu....og ég þarf að vaska upp. AARRGGG

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim