Takk fyrir samúðarkveðjurnar...
Englendingar halda ekki bolludaginn hátíðlegan þannig að ég fékk engar bollur, en það er líklega bara ágætt ég er nú soddan bolla sjálf!!! Hins vegar hafa þeir eitthvað ruglast í ríminu því þeir kalla sprengidag pönnukökudag og gúffuðu því í sig pönnsum í gær.
Þetta er búin að vera köld vika í Bristol, það hefur snjóað á hverjum degi, en snjórinn bráðnar um leið og hann lendir á jörðinni svo hann hefur nú ekki valdið mér neinum vandræðum. Bara svolítið huggulegt að kúra inni með góða bók og horfa á flyksurnar falla til jarðar og ganga í skólann með útrekna tunguna. Ég ætti nú að vera að lesa einhverjar háfræðilegar bækur en hef dottið í lestur skáldsaga. Hún Þórhildur færði mér nefninlega tvær bækur á íslensku en ég hef saknað þess að lesa á okkar ylhýra... það getur nú ekki talist tímasóun sem slík, en ég á bara nokkrar blaðsíður eftir af síðari bókinni og þá lofa ég að fara aftur í skólagírinn.
Annars fer það nú að verða skemmtileg hefð hjá mér að taka á móti gestum í byrjun mánaðarins. Þórhildur og Tóbías komu jú í febrúar, sælla minninga, og nú er hann Ari Klængur á leið til mín 11. mars, og í apríl koma Tóta og Matti. Maí er enn þá laus....
Nú ætla ég að fara að lesa... bestu kveðjur úr slyddunni í Bristol!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim