Í gær var þakkargjörðardagur og mér var boðið í veislu hjá Söru og Söru. Þær stóðu sig með stakri prýði og elduðu kalkún, troðslu (stuffing), gulrætur, spergilkál, kartöflumús og trönuberjasósu fyrir 16 manns og í eftirmat var graskerjabaka og eplabaka. Ég borðaði á mig gat og öllu var skolað niður með rauðu víni. Yfir eftirréttinum þurftu svo allir að segja fyrir hvað þeir voru þakklátir, afar amerískt og skemmitlegt í alla staði.
Mér er svo boðið í þakkargjörðarmáltíð til Heather á morgun svo ég verð held ég barasta södd fram að jólum.
Í morgun sendi Margarita mér skilaboð um að ég yrði að klæða mig vel áður en ég færi út, það hefði nefninlega snjóað í nótt. Ég held það snjói kannski ekkert mjög oft á Kýpur því úti var einungis smá föl sem bráðnaði fljótt en gladdi mig þó og setti óneitanlega jólasvip á daginn.
Á morgun er ég að fara til Bath í smá rannsóknarleiðangur fyrir verkefni í skólanum. Ég ætla að sitja í rútu sem keyrir um bæinn allan daginn og taka niður nótur, vona að það verði ekki mjög kalt, læt ykkur vita hvernig túristar í Bath "engage with the heritage" og hvernig leiðsögumenn "present or invent it" seinna og hver veit nema ég skelli mér í rómverskt bað eftir kaldan dag!
allavega bless í bili
ps ég komst að því hvar Óköpot á heima, þorði þó ekki að banka upp á...

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim