mánudagur, nóvember 21, 2005

PUBLIN
Miðvikudagskvöld, fyrir brottför hafði ég náð mér í snert af flensu, stífluð með eindæmum og útlitið ekki gott. Þegar ég vaknaði svo klukkan fimm höfðu gáttir andlits míns opnast og flóðið hófst (ég slefaði samt ekki). Á flugvellinum þurfti ég að brjóta odd af oflæti mínu of fjárfesta í svona tissjúpakka, sem allir alvöru "útlendingar" hafa jafnan í fórum sínum (það þykir ekki fínt að sjúga stanslaust upp í nefið). Eftir einungis rúman hálftíma lenti ég í Dublin með vasa fulla af hori, rambaði beint á hótelið og helgin hófst og hef ég sjaldan upplifað aðra eins - sneisafull af hlátursköstum og ævintýrum.
Ráðstefnan var góð, í flesta staði en jafnaðist þó ekki á við pubba flóru Íra, bragðgóðan guinnessinn, rautt límonaði, vinarlega barmenn, hæfileikaríka hlóðfæraleikara, og stórskemmtilega dansara.
Gengnar upp að hnjám fórum við Sophie út að borða á fimmtudagskvöldið og þaðan röltum við á milli pubba og kynntumst hinu ýmsasta fólki og verð ég að segja að þetta blessaða reykingabann hefur sko margt gott í för með sér, fyrir utan það augljósa er það að fara út að reykja hin besta leið til að kynnast ókunnugum. Á föstudagsmorgunin fengum við okkur morgunmat á hótelinu og komumst að því hversvegna hann var svona ódýr -eggin höfðu verið steikt fyrir viku og hituð upp í örbylgjuofni! Skelltum okkur svo á ráðstefnuna, fórum í einn bjór og svo heim að sofa.... já það voru níu fyrirlestrar á dagskrá á laugardaginn og með eftirdrög fimmtudagsins í huga var ákveðið að fara snemma í ból. Laugardagurinn fór svo vel fram með umræðum um lestarrusl, fornleifafræði gemsa, graffítí og annað áhugavert og þá var laugardagskvöldið tekið með trompi og höfuð ekki lagt á kodda fyrr en um sex. Við Sophie komust því aldrei aftur á ráðstefnuna á sunnudeginum og með dálítið samviskubit röltum við og rannsökuðum HogM Íra. Flaug svo heim klukkan sex í morgun, kláraði verkefnið mitt og hljóp í skólann. Ég kveið pínu fyrir að hitta kennarann minn og viðurkenna ástæðu fjarrveru minnar en hann hló og sagði já svona á að gera þetta - þú hefur svei mér þá hækkað í áliti hjá mér- svo samviskubitslaust og laus við kvef mæli ég með helgarferð til Dublin fyrir alla þá sem eru með haustflensu og hor í nös.
(ps. nokkrar myndir koma von bráðar á myndasíðuna)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim