laugardagur, nóvember 12, 2005


Ensk herramennska!


Í gær komum við Heather vinkona mín við á kebab stað á leiðinni heim af djamminu. Þar voru tveir "herramenn" sem buðust til að fylgja okkur heim, því klukkan væri orðin svo margt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist, mér hefur jafnan verið fylgt heim þegar komið er fram yfir miðnætti og hef ég dáðst af þessari manngæsku sem einkennir enska drengi.
Við gengum af stað og þegar Heather var komin heim, en hún býr um 2 mín gang frá kebab staðnum, hófst samtalið sem fékk mig til að líta öðruvísi á enska herramennsku
Herram.: "Hvar átt þú svo heima"
Ég: "Um 1 km í þessa átt"
Herram. "svona langt, vitlu ekki bara taka leigubíl"
Ég: "Nei þetta er ekkert langt og þetta er fjölfarin gata ég þarf ekkert á fylgd að halda"
Herram. "Í alvöru gerðu það taktu taxa, okkur er svo kalt"
Ég: "Góðu bestu fariði bara heim, það er allt í lagi með mig"
Herram. "þú skilur ekki við getum ekki látið þig labba eina heim, við erum enskir herramenn, þannig ef að þú tekur ekki taxa þá gætum við frosið til dauða"
Mér var hreinlega allri lokið, svo ég gekk af stað og þeir á eftir, "alltí lagi við skulum fylgja þér"
Já það er ekki allt sem sýnist, og hræsnin í þessu öllu saman var að ég var því sem næst bláedrú en þeir búnir að fá sér vel í tána, svo ef við hefðum hitt einhverja misindismenn hefði ég ekki verið betur stödd með tvo rugludalla í eftirdragi. En ég er þakklát fyrir hispursleysi þeirra í að útskýra fyrir mér hina hliðina á enskri herramennsku, þetta er þá eftir allt saman ekki manngæska heldur kvöð sem liggur á enskum drengjum....og næst þegar einhver býðst til að fylgja mér heim mun ég líta öðruvísi á hlutina.
Allavega heimferðin gekk vel og ég gat ekki látið það hjá sitja að taka mynd af þessum kjánum sem fannst þeir tilneyddir til að fylgja mér heim!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim