Dagurinn í dag er einn af þessum skrýtnu dögum með engu veðri, skýjað, hvorki kalt né heitt og hálf dimmt allan daginn - veðurlausir dagar hafa ólíkan blæ en veðurdagar. Allt er svo rólegt og enginn að flýta sér, pínu eins og allur heimurinn hafi verið settur á sló mó. Ég gekk því alla leið upp á Whiteladies Road og borðaði mexíkóskan mat með heather og fór svo og fékk mér stóran kaffibolla og þegar ég kom heim var komið kvöld - veðurlausi dagurinn varð því verklaus - Mín bíður því verkefni sem þarf að vinnast í kvöld því ég er að fara til Dublin á fimmtudaginn og morgundagurinn er uppbókaður af fyrirlestrum. Kennarinn minn tók þó af mér loforð um að eyða ekki meira en tveimur klst í verkefnið (hef nú þegar svikið hann) því hann segir að ég hafi tilhneygingu til að flækja heiminn um of.....
Allavega ég er á leiðinni til höfuðborgar Íra, flýg héðan klukkan átta á fimmtudagsmorguninn og kem aftur heim fyrir allar aldir á mánudaginn. Ferðin kostaði ekki nema um 9000 kr með flugi, gistingu í fjórar nætur og morgunverðum - geri aðrir betur! Ég segi ykkur ferðasöguna eftir helgi, og vonandi hef ég skemmtilegar myndir til að láta fylgja með!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim