Gaman saman. Mamma og pabbi eru komin og farin. Þau voru hjá mér í Kambabrú frá föstudegi til þriðjudags og við brölluðum margt skemmtilegt. Hæst fóru tveir glæstir sigrar undirritaðrar í skrafli (pabbi vann eina viðureign fyrir 7-stafa orðið „súrsuðu“ á tvöföldu orðgildi (þeir sem vita réttan stigafjölda fá alla marsípan molana úr Nóa konfektinu mínu senda heim).
Við kíktum líka á nokkur öldurhús. Meðal annars sátum við og supum á bekknum þar sem Watson og Crick uppgötvuðu lykilinn að leyndardómi lífsins (þeir sem vita svarið fá vínflöskurnar úr konfektinu (það eru reyndar engar í kassanum en þetta er líka svo létt spurning)).Báts- og búðarferðir voru einnig á dagskránni ásamt löngum göngutúrum, listasafni og snobb-skóla skoðunum.
Annars er nú Cambridge dvölin aldeilis farin að styttast í annan endann. Næstu helgi flyst ég fumlaust á fertugsaldurinn og kem svo heim rúmri viku síðar. Ég flýg svo aftur frá fyrirheitnalandinu 2. janúar á leið í sólina, með mótefni og moskítónet sem reddað var á sjöttu stundu (þ.e. mátulega tímanlega).
Á meðan ég er heima ætla ég að leita uppi alla þessa frábæru titla sem þið mæltuð með við síðustu færslu. Hlakka til að kynnast manninum sem fór út um gluggann og öllum hinum sögupersónunum sem hafa heillað ykkur. Núna kemst hinsvegar ekkert annað að en blessuðu Vestur-Íslendingarnir sem eiga hug minn allan á milli þess sem ég hugga mig (upp á dönsku, þeir hafa enn ekki náð að græta mig) með heitt rauðvín, konfekt og grafinn lax.

5 Ummæli:
Ég ætla að giska á að "súrsuðu"x2 gefi 28 stig, en vinirnir Watson og Crick hafi fattað upp á DNA á bekknum góða.
kv. Gvendur
Ég var einmitt að hugsa um DNA-ið...
En til hamingju með afmælið elsku Ágústa mín... Ég hlakka til að hitta þig þegar þú lendir á Fróni.
Gangi þér vel með Vestur-Íslendingana.
knús í Kambabrú,
Edda tanta
Til lukku með gærdaginn frænka. Sjáumst vonandi um jólin.
Kv.frá Selfossi
Halli
s=1, ú=8, R =1 S=1 U =1 Ð =2 U=1 Svo að orðið gefur 15 og það sinnum tveir munu vera 30 stig
Fæ ég marsípanmolana?
Hlakka ofsa mikið til að sjá þig réttbráðum Gústa
Sko þetta er rétt stafgildi hjá þér Hildur, Gvendur þú varst nálægt því.
Een þú gleymir að fyrir að nota alla 7 stafina sína fær leikmaður 50 stig í plús svo pápi fékk 80 stig allt í allt.
sem er eins gott því ég er búin með allt konfektið. Meira að segja marsipan er hey í harðindum ;)
Gvendur þú áttir kollgátuna með DNA ið. Færð tvær spesíur og eina mömmuköku á 22.
Hlakka til að sjá ykkur og skrafla ekki á morgun heldur hinn.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim