þriðjudagur, júlí 26, 2011


Árið 1898 eignaðist Jón Gíslason fyrstur Ný-Íslendinga grammófón og auðvitað voru tilkynningar settar í blöðin:

Herra Jón Gíslason er búinn að eignast eina hina frægu málvél, (grammophone), allra nýjustu sort. Með henni er hann reiðubúinn að tala, syngja, tralla og hlæja, fyrir fólkið. Að heyra á þessa undra vél, er ein sú bezta skemmtun, sem fólk getur haft.
Jón á þökk skilið fyrir fyrirtækið.

Hr. J. Gíslason fer bráðlega niður til Nýja—Íslands með sinn fræga Gramophone. Takið Jóni vel, því hann getur látið yður gráta af hlátri, og klökkna af tilfinningu.
Húrra fyrir Jóni!

Ég hefði sko ekkert á móti því að fá Jón í heimsókn núna með málvélina undir arminum til að syngja, tralla og gráta af hlátri. Það væri líka gaman að lesa svona fréttir í dagblöðunum : "Jón Jónsson var að eignast nýjasta snjall símann frá Apple, húrra fyrir honum!!" og svo myndi Jón ferðaðist um og skemmta fólki með allskyns öpp-sum, þá væri lífið yndislegt. Eða ekki.

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Það væri nú ekki amalegt að fá slíkan Jón í heimsókn til að talla.
Málvél er annars annsi fyndið orð :)

10:43 f.h.  
Blogger Tóta sagði...

hí hí hí já þetta er svei mér skondið. Húrra!

3:28 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim