fimmtudagur, nóvember 03, 2011

Hjólið skal heita Lukka, það fer því (henni) best en kærar þakkir fyrir (mis) góðar tillögur!

Það hefur ýmislegt á daga mína drifið en fátt sem er í frásögur færandi. Flest undur hversdagslegt og síst efni til bloggfærslna. Þó get ég upplýst að ég hef síðan í lok ágúst lesið nokkrar prýðisgóðar skáldsögur.

Fyrst las ég Snjómanninn eftir Jo Nesbo sem Edda skildi eftir hjá Þórhildi. Hún var ágæt og spennan hélt mér við lesturinn, engin rómantík eða ástarvæl sem hentaði vel. Því næst las ég Life is Elsewhere eftir Milan Kundera. Kundera svíkur engan og frásagnir hans af ástarævintýrum brenglaðra austur Evrópubúa voru huggun harmi gegn. Næst á dagsskrá var svo Enn er Morgun eftir Böðvar Guðmundsson og í kjölfarið las ég Sölku Völku og í beinu framhaldi Ljósu Kristínar Steinsdóttur. Þessi þrenna gæti grætt gráan stein! Aðventa Gunnars Gunnarssonar tók svo við; maður, hrútur og hundur voru góð tilbreyting við stef vonbrigða sem sögurnar þrjár á undan settu og nú liggur á náttborðinu mínu Gullna dagbókin hennar Doris Lessing. Meðfram þessu hef ég líka lesið tvær svokallaðar hádegisbækur (þ.e. bækur sem henta til smáskammtalesturs í hádeginu) og þar urðu fyrir valinu Á milli trjánna eftir Gyrði Elíasson og What I talk about when I talk about running eftir Haruki Murakami sem báðar eru frábærar, hvor á sinn hátt.
Ég á nú langt í land með Gullnu dagbókina en ef þið lumið á hugmynd að nýrri hádegisbók þá væri það velþegið.

Ég er líka búin að fara í tónleikaferð til Manchester, á ráðstefnu í Cambridge og prjóna næstum heila skykkju fyrir mig sjálfa. Maður kemur ýmsu í verk þegar enginn truflar mann .... já og svo er það doktorsritgerðin, hún mjakast.

Ég kem heim í jólafrí 20. des og heimta hvít jól með snjó í Bláfjöllum svo ég geti skíðað af mér jólasteikina áður en ég þarf að spranga um á bikini í Karabískahafinu í janúar. En áður en það gerist koma mamma og pabbi í heimsókn og hver veit nema ég setji þá inn myndir af gamla settinu í Cambridge.

Verið góð hvert við annað x

7 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég mæli með bókinni Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf, eftir Jonas Jonasson. Þrælskemmtileg. Minnti mann stundum á góða dátann Sveijk og Forrest Gump.

kv.

Halli

11:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sammála Halla með gamlingjann. Við mælum með Brotnum Eggjum eftir Jim Powell.

Háeyrarvellir 54.

5:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mikið er nú gaman að fá aftur að fylgjast með ævintýrum Ágústu í útlandinu... Mér finnst nafnið á hjólinu bara fínt - ég átti einu sinni grænan bíl og hann var kallaður græna baunin...
En varðandi lesefni get ég nú lítt verið til ráðgjafar - þessa dagana er ég í skemmtibókabindindi og les einvörðungu fræðilegt efni í ýmsu formi - og að sjálfsögðu málgagnið. En mér fannst mjög skemmtileg bók sem ég las í sumar og heitir hún Bréf til ...(man ekki nafnið á konunni hvað þá höfundinn - held ég sé næstum búin að lesa yfir mig eins og SiggiogPétur).
kærar kveðjur til Kambabrúar (Cambridge)
Edda

10:36 e.h.  
Blogger Hildur sagði...

Ég mæli líka með brotnum eggjum. Gat ekki hætt að lesa í gær og las til tvö og var því ekki mætt í ráðuneytið fyrr en um tíu. Einnig mæli ég með Läkkerberg bókunum, þær eru mjög góðar. Ég er búin að vera að lesa mikið af skandinavískum krimmum og þeir eru fínt afþreyingarefni. Svo er alltaf gott að lesa málgagnið :)

10:27 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Brotin egg er þrælgóð bók, sammála öllum um það. Er hættur að lesa málgagnið ykkar enda búinn að segja mig úr flokknum fyrir löngu. Bíð eftir almennilegri byltingu.

Kv.
Che Halli

2:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvað hét nú aftur bókin eftir Jón Kalmann, bréf til Helgu? eða hvað ég man það nú ekki alveg en hún var nokkuð skondin.
Bestu kveðjur frá Berlín, Þórhildur er að lesa kvöldskammtinn fyrir Karítas.
Sigga

8:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég held að við séum að tala um sömu bók Sigga. Hún heitir Svar við bréfi Helgu og er ekki eftir Jón Kalmann heldur Bergsvein nokkurn Birgisson... og hún er skemmtileg aflestrar. Þjóðleg og fróðleg...

Edda (sem er hætt í skemmtibókabindindi og er að lesa Änglamakerskan eftir Camillu Läckberg á Ipad fyrir svefninn)

11:56 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim