miðvikudagur, ágúst 17, 2011

Það sem ég geri ekki annað en lesa og skrifa þá er ekkert í frásögur færandi. Ég held því áfram að deila lesefninu með ykkur og datt í hug að benda ykkur á þessar afbragðs uppskriftir úr Kvennafræðara Elínar Briem frá 1891. Ef þið eruð hrifin þá er bókin aðgengileg á bækur.is . Væri ekki upplagt að hafa aldamóta þema í eins og eina viku í haust?!
Slátursúpa nr. 1. Handa 9.
8 pt. vatn, Slátur úr kind, 5 teskeiðar salt, 60 kv. mjöl, 1 kv. engifer, 20 kv. söxuð hvönn.
Þegar búið er að búa til slátrið, er það ásamt saltinu látið ofan í vatnið þegar sýður. Þegar suðan er komin vel í aptur, er mjölið látið út í, einnig engiferið. Hvönnin er soðin 5—10 mín. Eptir hjer um bil 2 tíma suðu, eða þegar hnífur hreinsar sig í blóðmörnum, er maturinn búinn.
Slátursúpa nr. 2.
Slátursdrukkur 60 kv, fínt mjöl, og vatn: 6 pt., 18 kv. sykur.
Þegar búið er að blanda saman drukknum og vatninu, svo að blandan þyki mátulega súr, er hún sett yfir eld. Þegar sýður, er sykurinn og mjölið látið út í. Þegar súpan hefur soðið 1/2 tíma, er hún búin.
Og að lokum eitt húsráð:
Að ná vínblettum úr hvítum þvotti.
Fyrst er bletturinn bleyttur í volgu vatni og þar næst hellt á hann nokkrum dropum af brennisteinssýruvatni; eptir nokkrar minútur er bletturinn þveginn úr köldu vatni. Nýjum rauðvinsblettum má ná úr, með því að þvo þá úr brennivíni og vatni á eptir.

2 Ummæli:

Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

maður fær nú bara vatn í munninn yfir öllum þessum krásum. helledússeda! hvernig ætli þeim muni lítast á þessa matseld á barbuda? legg til að þú takir með þér í skjatta og leyfir þeim að prófa.
xxx

8:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

lítt fýsir mig að bragða þessa matrétti, en aðferðin við að ná vínbletum úr hvítum þvotti er forvitnileg.
Alltaf gaman að lesa það sem þú vilt deila með okkur hinum.
Bestu kveðjur til ykkar Chris.
Sigga

9:26 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim