Jæja þá. Nú hefur bloggið fengið nýjan titil. Þann fjórða í röðinni sem fylgir á eftir Gústu í Glasgow, Bústnu í Bristol og Ágú í Aberdeen - Kankvís í Cambridge, er það ekki bara ágætis titill?
Ég er semsagt flutt til Cambridge, flutti frá Aberdeen með brostið hjarta en þó ekki brotið. "Ei vitkast sá er aldrei verður hryggur" o.s.frv.
Hér eru myndir af nýja húsinu mínu. Ég flutti inn á hana Ástu Björk og það fer mjög vel um mig. Hér fylgja líka myndir af nýja farskjótanum sem ég fjárfesti í og nú efni ég til nafnasamkeppni ... hvað á hjólið að heita??
Ég snarast á því á morgnanna á bókasafn forleifafræðideildarinnar við Cambridge háskóla þar sem mér var vel tekið og gefið bókasafnskort sem gildir fram að jólum. Bókasafnið er gamalt, þar er hátt til lofts og svalir allt í kring og niðri sit ég við stórt eikarborð og skrifa og endurskrifa og skrifa og endurskrifa.
Ég leyfi ykkur að fylgjast með hvernig gengur og vonandi á nú eitthvað sérlega spennandi og skemmtilegt eftir að drífa á daga mína hér á suðaustur Englandi.
Munið eftir nafnasamkeppninni!

11 Ummæli:
Þórhildur stingur upp á garmur hinn græni - græni garmur
Ragga stingur upp á Lukku
það getur enginn kommentað nema ég. Tóta stingur upp á græn píla
já þá getur þú þotið um cambridge eins og græn píla!
kv Tóta
ok semsagt nauðsynlegt að velja "naflaus" þegar það er kommentað og muna bara að setja nafn með ;)
gústa
Hvað með Gíraffinn í höfuðið á frægum forföður sem eitt sinn bjó í Hjallatúni. Þetta gæti þá verið Gíraffinn græni til aðgreingar frá Gíraffanum gamla.
Pabbi
Mér líst afar vel á græn píla, þá getur þú ferðast um allt eins og græn píla :)
Frábært hús sem þú býrð í. Gangi þér vel með skrifin gústa mín.
Bið að heilsa Ástu.
mér finnst farskjótinn svolítið einkennilegur í laginu, en sting upp á nafngiftinni Naðran. (Stytting úr skellinaðran)eða þannig eða bara Græna hættan.
Bestu kveðjur til þín Ágústa mín.
Sigga
Á það ekki bara að vera græna hjólið sbr. bækurnar um stúlkuna á bláa hjólinu. Þá yrðir þú stúlkan á græna hjólinu. Svo væri hægt að skrifa barnabók sem héti græna hjólið og væri í sömu röð og bláa kannan og græni hatturinn. Annars myndi ég skíra það Hlunk í höfuðið á grænum hlunki sem er mjög góður frostpinni.
Kveðja til Cambridge
Halli
Hver vann???
túrilla
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim