föstudagur, ágúst 26, 2011

Ég er búin að vera sérlega löt í þessari viku og kenni því um að í byrjun vikunnar fékk ég tilboð um að hjálpa við að stjórna uppgrefti á eyjunni Barbuda í Karabískahafinu í janúar. Þessar gleðifréttir hefðu kannski átt að blása mér lærdómsanda í brjóst en höfðu þveröfug áhrif. Önnur ástæða er netsýki á háu stigi. Ég vafra svo mikið um netið að ég verð sjóveik af því að hugsa um það. Í nótt dreymdi mig að ég skrifaði Hlín ritstjóra eins vefmiðilsins póst um að það væri ekkert merkilegt við það að labba upp á Stokkseyri í staðinn fyrir að keyra þangað, það væru nú bara 7 kílómetrar! Veit ekki alveg hvaðan þessar hugsanir ásóttu mig en pabbi var líka í draumnum og hann sagði að það væri bara skrítið fólk sem labbaði á Stokkseyri eins og konan sem hallar svo oft undir flatt. Ja hérna hér. Þessi draumur er pottþétt innblásinn af allri þeirri endemis vitleysu sem ég les á íslenskum vefsíðum um umhverfisvernd og femínisma ... en það stendur ekki til að senda neinum bréf frekar en að ganga upp á Stokkseyri.

En verð bara að segja að

Ég veit vel að fullt af konum hafa áhuga á varalitum og tísku (ég þekki meira að segja nokkrar) en ég skil ekki afhverju konur sem benda á að sumar konur hafi ekki áhuga á varalitum né tísku (jafnvel þó þær sjálfar hafi það) og á að þær staðalímyndir sem margir, karlar og konur, hafi um konur séu skakkar og þurfi meðvitað að vera útrýmt (eins og öðrum staðalímyndum), þurfi alltaf að vera kallaðar bitrar, ljótar og leiðinlegar eða húmorslausar (af því þeim finnst Gilzen what ever ekki fyndinn frekar en mér). Bara skil það ekki. Ekki betur en ég skil afhverju ég dríf mig ekki í að skrifa inngang að ritgerðarvanskapnaðnum svo hann verði tilbúinn áður en ég fer í KARABÍSKAHAFIÐ!!

3 Ummæli:

Blogger Edda sagði...

vó - ekki leiðinlegt að fara í Karabíska... Sýnist þú geta notað það sem gulrót fyrir ritgerðarskrifum. Ef þú ert dugleg þá máttu fara - annars ekki!

4:06 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

skrýtinn draumur... en ossa er ég sammála þér - við höfum vitað þetta lengi við í ljótukonufélaginu!

2:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Má ég vera handlangari hjá þér í Karabíska ?? Væri meira til í það en dimman íslenskan janúar.

kv.

Halli

12:08 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim