mánudagur, júní 14, 2010




Það gengur enn þá vel fyrir vestan. Búið að rigna kannski helst til mikið fyrir minn smekk og Árborgarbúa líka sá ég (sbr. myndina að ofan). Annars var sól og blíða í dag og ég hreinlega mokaði dóti í poka. Ég er búin að finna svo mikið af allskyns. Ég fann t.d. pínulítið lóð af vigt sem hérlendur sagnfræðingur fullyrti við mig að væri sko komið beint frá Íslandi árið 1875. Takk fyrir pakkann. Svo fann ég tannbursta í dag, sem var skondið og blýanta og aspirin glas og hnappa og smellur og krækjur og og og.... nú vil ég bara finna aðeins meira af aðeins eldra dóti og þá get ég farið heim.
Set líka inn mynd af mér í vinnunni. Þetta tól fékk ég lánað frá háskólanum í Winnipeg og svei mér þá ef það slagar ekki í að vera jafngamalt og fornleifarnar. En það virkaði mér til undrunar svo það er allt í góðu.
Bestu kveðjur á klakann, ég væri alveg til í eina bjarta sumarnótt í pósti, ef einhver má vera að. Hér dimmir nefinlega upp úr níu.
ps. ég hef ekki verið bitin í heila viku. 7,9, 13. Hvorki af fljúgandi né bljóðsjúgandi plágum!!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Það rignir líka í Árborg á Íslandi núna. Verst að eiga ekki svona skilti. Þú tekur þig fagmannlega út á kíkinum. Ég var viss um að fólk fyrir 1900 hefði ekki átt tannbursta. Gott að þú ert laus við bitvarginn.

kveðja

Halli

4:13 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

Til hamingju með fundinn og vonandi tekst að biðja guð um að láta sólina skína, við erum eiginleg búin að gefast upp á því hér ;)

4:41 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

hey þú ert mjög sjóræningjaleg með þennan kíki, ayh!

4:42 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

mikil skelfingarósköp saknaði ég þín á eyrarbakka síðustu vikuna - sem og allar aðrar vikur svo sem.
ég vona að þú sért með sól í hjarta og söng á vörum!
ást ást ást!

2:13 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim