mánudagur, júní 07, 2010


Allt gengur vel í Vesturheimi. Ég er búin að finna dobíu af nöglum og það sem ég held að sé gólfið úr húsinu hans Jóns Guttormssonar og Pálínu, á því var prjónles, leirkerabrot, glerbrot og ýmislegt fleira. Moskítóflugurnar hafa fundið mig og mig klæjar sem ég væri vafinn inn í steinull. Önnur skordýrategund sem finnst ég ljúffeng er sú sem kölluð er "wood ticks" - þeir sjúga blóð og áður en ég baða mig í lok dags þarf ég að strjúka yfir fætur og handleggi og toga þá úr húðinni sem er ógó ógeðslegt og alls ekki uppáhalds.

En ég fann líka frændur mína, Stefan og Chuck. Langalangaafi þeirra hann Jakob var bróðir langalangalangaafa míns Karls, föður Úlfars, föður Ágústu, móður Birgis föður míns. Læt fylgja með myndir af uppgraftarsvæðinu mínu og frændum mínum og mér á góðri stund ;)

8 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

En skemmtilegt hjá þér. Þið frændfólk eruð nú ekkert mjög lík. En uppgraftarsvæðið þitt er mjög flott :)
Láttu nú ekki pöddurnar éta þig upp til agna.
Hafðu það gott :)

Kv. Hildur

9:37 f.h.  
Blogger Tóta sagði...

þetta er rosaleg með þessa ógó maura :( en flott uppgraftarsvæði og ég sé að það hefur ekkert tognað úr mannskapnum þarna í Canada :)
ble í bili
Tóta

10:10 f.h.  
Blogger Tóta sagði...

ps. þetta er mjög húsið á sléttunni og þú alveg eins og Laura Ingalls

11:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa um ævintýrin í vesturheimi. Passaðu þig á þessum wood ticks, þetta geta verið hættulegustu dýr skógarins.Það er svalt að eiga frænda sem heitir Chuck :-)

Halli

11:23 f.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

Loksins fréttir úr Vesturheimi!
Gott að heyra að allt gangi vel - nema þessar ógeðis blóðsugur, pant aldrei hitta svoleiðis.
Hittirðu frændur þína fyrir tilviljun á götu úti eða varstu búin að leita þeirra lengi?
Vinakveðja til Vesturheims!

12:19 e.h.  
Blogger Ágústa sagði...

já þetta er mjög húsið á sléttunni hér - en ég var nú bara að reyna að verja sólbrunninn hálsinn með fléttum og klút en sé að ég er alveg í stíl.

Magga ömmusystir mín sendi mér skilaboð á feisbúkk og þannig hafði ég upp á frændum mínum, ég var sko ekkert að leyta en fyrst þetta kom svona í fangið á mér þá stóðst ég ekki mátið að kíkja í heimsókn.

Ekki fundið neinar blóðsugur 3 daga í röð. 7,9, 13!

2:05 f.h.  
Blogger Ágústa sagði...

ég var sko ekkert að leita - ég er náttúrlega sífellt að leyta! úbs

2:07 f.h.  
Blogger Tóta sagði...

koma svo, blogga meir

2:38 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim