Sólin skín á Aberdeen í dag, ég sá fjólubláa lauka gægjast upp úr moldinni á leiðinn í skólann og get fullyrt að fuglarnir syngja að minnsta kosti einu desibili hærra í dag en í gær. Gæti það verið? Er að koma vor? Ég finn hvernig húðin framleiðir D vítamín og hvernig skap mitt lyftist og nú á ég á þá eina ósk óuppfyllta að það þessi þriðjudagur breytist í föstudag ... en það er líklega til of mikils ætlast.
Ég er búin að bóka vorferð um páskana alla leið til Cornwall, sem er eins langt og ég kemst án þess að fara út fyrir landsteinana. Við Chris ætlum suður eftir með rútunni og ferðin tekur 18 klukkustundir. Yess! (Ef þið kunnið skemmtilega bílaleiki eða vitið af góðu hlaðvarpi þá megið þið endilega láta mig vita) en ferðin verður vel þess virði. Hvað er betra en breskar strendur, feitar franskar, hlátrasköll og mávager!
En nú er aldrei að vita nema vorið verði komi til mín áður en ég næ í það suður frá. Þetta er æsispennandi. Ég lofa að láta ykkur vita, hvenær og hvar ég sé fyrstu páskaliljuna!

9 Ummæli:
þetta er að koma, ég finn það á lyktinni og sé það á svipnum á fólkinu úti á götu...
ég stend líka í þeirri trú að það sé að koma vor á Islandi, allavega mun vorlegra núna heldur en það var í snjónum í síðustu viku. Eigum við að koma í vorkeppni á milli Íslands, Þýskalands og Skotlands?
kv. Hildur
ég sá líka lauka áðan! pant vinna!
Hér er svo mikil þoka að laukarnir sjást ekki en ég er viss um að þeir eru komnir upp
kv. Hildur
Hitastigið í Lundúnum er rétt að slæðast upp fyrir skítakulda - innanhúss í það minnsta. Þarf að fara í könnunarleiðangur og athuga með lauka.
Ég segi að fyrsta páskaliljan marki vor og mun fara fram á myndræn sönnunargögn. Go go go...
Ég var rétt að sjá fyrstu krókusana í dag en skal hvetja páskaliljurnar til dáða.
PÁSKALILJUR!!! Hvert á ég að setja myndirnar?
Sendu mér myndirnar og ég set þær hér inn!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim