miðvikudagur, janúar 27, 2010

Ég berst á fáki fráum fram um veg ....

Það eru gömul sannindi og ný að best af öllu sé að lifa í stundinni, hverjum degi nægir sín þjáning og allt það. Fólk er alltaf að tuða þetta vegna þess að það er næstum því ómögulegt að hugsa ekki í sífellu um það sem koma skal. Ofan á allt saman bætist svo að grasið er grænna hinum megin og fjarlægðin gerir fjöllin blá. Það er því alltaf einhvers aðeins betra að vænta handan hornsins og þá er nú eðlilegt að maður greikki sporið og liggji á.

Ég lifi þó enn í þeirri von að þegar ég hætti loksins í skóla þá muni tíminn hægja á sér og ég upplifa einhverskonar hversdags alsælu þar sem til einskis er til að hlakka nema þess eins að vakna á morgnana ... ef ég gæti bara hraðspólað yfir þessa doktorsritgerð.

Kannski ég fari bara beint á Sólvelli.

4 Ummæli:

Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

oh ég hlakka líka til þegar við sameinumst á Sólvöllum! mikið verður gaman þá. scúbísnakks á hverju kvöldi og göngutúrar útí byrgjar (því við komumst ekki lengra).

vona samt að ég hitti þig nokkrum sinnum fyrir það.

kiss kiss

10:16 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú verður bráðum fullorðin eins og ég komin í 8 -4 líf og ekkert stress. Það hljómar samt ekkert spennandi að vera komin í slíka rútínu

kv Hildur

4:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

jæja Gússa, viltu ekki fara að blogga um það sem á daga þína hafa drifið síðan í janúar?

kv. Hildur

1:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vonandi nærðu mörgum góðum og skemmtilegum árum sem vinnandi doktor, ekki lærandi og vinnandi heldur fyrst og fremst vinnandi, uppalandi og svoleiðis. - Algerleg hversdagslegt.
Er ekki alltaf sami nístingskuldinn þarna í Deninni? Hér er búið vera dálítð hvasst á köflum í dag. Enginn snjór eða kuldi.
bestu kveðjur,
sigga most.

8:02 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim