þriðjudagur, desember 01, 2009

Þegar ég byrjaði í skólanum hérna þá var mér sagt að ég þyrfti að huga að PDP - inu mínu og mér var gefin mappa með allskyns gröfum, súluritum og eyðublöðum. PDP gæti útlagst PÞP á íslensku eða persónu þróunar plan. Ég þarf því samhliða rannsókninni minni að þróa persónu mína til að gera mig að eftirsóknarverðari vinnukrafti. Árlega þarf ég svo að sýna fram á að ég hafi gefið persónu þróun minni gaum með því að hafa farið á allskyns námsskeið. Það er skemmst frá því að segja að ég stóð mig ekki í stykkinu síðasta vetur og er því vanþróaðari en æskilegt þykir. Í gær hysjaði ég því upp um mig gammosíurnar og buxurnar og fór á námskeið í rannsóknar strategíu. Eftir því sem ég komst næst var þetta námskeið um hvernig maður á að markaðssetja sjálfan sig til að verða virtur og ríkur. Ein leiðin til að ná því (eftirsóknaverða?) takmarki er að "networka" (isk. vefja?) og það sem meira er ég á að eyða 10% af tíma mínum í svoleiðis framapot, 80% í rannsóknarvinnu og 10% í að fara á námskeið. Mér finnst með eindæmum leiðinlegt að networka og vil heldur tala við fólk sem ég þekki en ókunnuga og því féll mér ketilbrot í eld. En þá komu systkinin Hagalín til hjálpar. Í próflestri sínum hafði ungi sagnfræðineminn rekist á mig og systur sína 10 ára gamlar á fullu að networka í DV. Sko okkur. Kannski á ég þetta enn þá til einhversstaðar?

4 Ummæli:

Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

hahaha! ég er enn að jafna mig á þessu. í dv af öllum stöðum!

4:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Krókurinn hefur sumsé beygst snemma en hvað svo??? Höfðuð þið frænkur eitthvað upp úr þessu þarna í den?

7:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Fyndið.

Ég hugsa að það sé betra að hafa birst í DV á þessum tíma heldur en í dag.

Halli

11:15 f.h.  
Blogger Rut sagði...

hahaha þetta er æðislegt!
þórhildur, þú sem hefur talað um að þig vanti áhugamál... skátar, dýr, frímerkjasöfnun og fleira... af nógu að taka!

10:38 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim