miðvikudagur, febrúar 24, 2010


Það er búið að vera alveg ofsalega kalt í Aberdeen síðustu viku, jafnt inni sem úti. Ólífuolían skildi sig á meðan við fórum í grillveislu til Collieston og sjampóið varð svo kalt að það var vont að setja það í hárið, þvotturinn sem ég þvoði á föstudaginn er enn rakur á snúrunni. Ég mun aldrei venjast þessari vesöld en í gegnum árin hef ég safnað mörgum vopnum í búrið. Ég hef háð hetjulega baráttu með hitapokum, ullarnærfötum, ógrynni af ullarsokkum, flíspeysu og -teppi, húfu og fingralausum vettlingum, hárblásara, baðslopp og hlýjum inniskóm. Nýjasta vopnið er köttur sem ég fékk sendan frá Bristol í byrjun mánaðarins. Kötturinn er, eins og sjá má á myndunum hér til hliðar, með ógnarlangar lappir og hendur sem hægt er að binda um hálsinn og mittið svo heklaður hausinn liggi á öxl viðkomandi og hlýji hálsakot og kinnar. Það besta við köttin er þó ótvírætt búkurinn sem er hannaður fyrir hitapoka. Með heitt vatn í iðrunum er kisa sá allrabesti félagi sem ég get hugsað mér á kvöldin. Mér finnst pínu eins og ég sé í mömmuleik með hana hangandi framan á mér á meðan ég vaska upp, les og horfi á sjónvarpið en það sér enginn til mín .....
Brrrrrrr.

5 Ummæli:

Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

þetta er æðisleg uppfinning! samt svolítið skelfilegur kisinn, alla vega frekar ófrýnilegur :)

11:04 f.h.  
Anonymous Herdís sagði...

Stórkostlegt! Mig langar í svona. Og takk fyrir að kynna mig fyrir hitapokanum, enn og aftur, skil ekki hvernig ég lifði áður en hann varð fastagestur til fóta á köldum vetrarkvöldum.

12:52 f.h.  
Blogger Ólöf Halldora sagði...

úff hvað ég vorkenni þér mikið að lifa við svona mikinn kulda. Ég vona svo innilega ykkar vegna að vorið sé í vændum. Sammála Þórhildi, mér finnst hann frekar vera að ráðast á þig enn að faðma.

9:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Snilldar hitaköttur.

kv. Halli

1:22 e.h.  
Blogger Rut sagði...

schnilld!
ekki láta þér verða allt of kalt gústa mín. vorið er á næsta leyti!

3:11 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim