Haldið þið að þið hefðuð farið til Ameríku?
Stundum velti ég því fyrir mér hvort að ég hefði drifið mig til Ameríku ef ég hefði verið ung kona á síðustu áratugum 19. aldar og hefði getað orðið mér úti um 120 kr. Hún Rósamunda fór og hún segir svona frá:
"[ég] var síðast vinnukona á Bægisá; og mun óvíða völ á betri vistum á Íslandi ... Jeg vann þar algeng vinnukonuverk: rakaði á sumrum, og það opt í blautum engjum; ég mjólkaði með öðrum fleiri þar, og voru um 200 ær í kvíum. Vinnutími var á sumrum frá kl. 7 á morgnanna til kl. 11 á kvöldin; og opt eptir þann tíma varð jeg að þvo og bæta skó og plögg, og þó var kaupið að eins 35 kr. um árið ... Jeg hef aldrei haft hjer minna kaup en 10 doll. um mánuðinn ... Vinnutími minn hjer hefur aldrei verið lengri en til kl. 6 á kveldin - eða 10 tíma vinna á dag ... Jeg hef aldrei unnið hjer nema við innanhús störf, aldrei borið vatn, aldrei mjólkað ær nje kýr, aldrei þurft að bæta nje þvo borgunarlaust eptir algengan vinnutíma; og því síður hef jeg staðið á blautum engjum við rakstur, eins og jeg opt gjörði heima."
_
Ég hugsa að ég hefði farið. Enda fór ég sjálf (þó ekki til Kanada) rúmlega einni öld á eftir Rósamundu. Ég get tekið undir með henni; ég hef aldri borið vatn, mjólkað ær né kýr og aldrei nokkurn tíma hef ég bætt sokka eða plögg ... en ég gerði það ekki heldur á Íslandi. Heppin!
_
p.s. myndirnar eru af brota broti af fjársjóðnum mínum sem ég var að fá leyfi til að flytja úr landi í gær. Þetta eru nefninlega menningarverðmæti og það var sko ekki hlaupið að því að fá þau til Skotlands.

7 Ummæli:
fyrst þegar ég sá myndirnar hélt ég að þær væru af einhverjum bakstri... ein gráðug.
til lukku með útflutningsleyfið sæta mín. það hlýtur að auðvelda þér vinnuna þína að hafa "allt" á einum stað.
ég veit ekki hvort ég hefði farið vestur yfir. held ég hefði varla þorað. og þó.
ósköp hefur vinnukonulífið verið dapurt á Fróni. Ég er mest hissa á að fólk hafi haft tíma til að hugsa um að flytjast búferlum til Ammeríkunnar...
Til lukku með menningarverðmætin - gott að vera komin með þau í hendur
aunty Edda
Sagan er að fara að endurtaka sig. Bráðum flykkjast Íslendingar til Kanada eða Skandinavíu sem aldrei fyrr til að þurfa einmitt ekki að vinna 20 tíma á dag til að lifa af.
Halli
Ps. Hélt líka fyrst að þetta væru smákökur
já svei mér maður hefði kannski bara drifið sig á vit ævintýrana. Ég hélt sko pottþétt að þetta væri kleina:)
Ég hefði bar neitað að vinna svona mikið. Hefði ekki tekið í mál að mjólka. Aumingjas fólkið. Ég hélt líka að þú værir að sýna okkur myndir af því hvað þú ert búin að vera dugleg að baka.
Kv. Hildur
ég er viss um að ég hefði ekki farið rassgat, - alltaf að vona - þetta hlýtur að fara að lagast, getur ekki versnað o.s.frv.
Er ekki annars allt í góðu hjá Skotum? Þeir eru ekkert að fljóta á haf út? Mikið hvað það er búið að rigna á Tjallana.
kveð,
sigga mos
Það er nú alveg farin að læðast í mann útþrá með yfirvofandi breytingar: skandinavíska skatta og amerískt heilbrigðiskerfi!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim