þriðjudagur, febrúar 16, 2010


Á síðasta ári voru mestu búferlaflutningar frá Íslandi EVER, árið í öðru sæti 1887 er langt á eftir 2009. 4835 var tala brottflutra umfram influttra (brottflytjenda umfram innflytjenda) en 1887 var sama tala skitin 2229 manns. Svo má bæta nemendum eins og mér við töluna frá 2009, sem skrá sig ekki úr landi til að geta hjálpað við endurreisn efnahagsins með ríflegum skattgreiðslum af námsstyrkjum sem í Bretlandi eru skattfríir og kannski örfáum námsmönnum sem fóru til Kaupmannahöfn árið 1887 við þá tölu. En það er önnur ella. Væri ekki skemmtilegt ef að allir sem fóru frá Íslandi 2009 (alls 9546) hefðu farið til sama lands og væru þar að myndast við að búa til Nýtt Ísland eins og dugnaðarforkarnir frá 1887 gerðu. Þar sem öllu sem einkenndi Ísland árið 2009 væri snúið á haus.
Hvað hefur fólk með sér sem flyst af landi brott núna? Ostahnífa og eggjaskera (sem erfitt er að finna sumsstaðar annarsstaðar?), hvað haldið þið? Ég er viss um að það eru furðumargt sem þessir mestu fólksflutningar Íslandssögunnar eiga sameiginlegt.

En að öðru. Ég er búin að vera í mikilli frystihússtemningu á rannsóknarstofunni minni. Með ipodinn í eyrunum (átti reyndar ekki ipod þegar ég var í frystihúsinu) er ég búin að vera að skola, raða í rekka, vigta og pakka. Mikið væri gaman að hafa Rut á rekkunum, Þorbjörgu á vigtinni og Kristínu og Ólöfu við hlið mér í pökkuninni een það verður ekki á allt kosið. Hvert keramik brotið á fætur öðru ratar nú í sinn eigin poka eftir kúnstarinnar reglum, excel skjalið þenst út og bráðum mun textinn um líf í íslensku koti á 19. öld skrifa sig sjálfur.
ps. myndin efst er af einu af uppáhalds keramikbrotunum mínum. Hefur einhver séð svona disk með mynd af manni með byssu?

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú ættir kannski að hafa samband við þessa útfluttu íslendinga og fá þá til liðs við þig til þess að mynda nýtt ísland.
Á ég að senda þér spóluna sem ég og Tóta tókum einu sinni uppá fyrir þig þegar þú varst í frystihúsinu sem var með sama Bjögga Halldórs laginu þrisvar í röð?

Kv. Hildur

7:56 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

ég væri alveg til í að kíkja í heimsókn til nýja íslands 2009. en hvar ætti það að vera? í einhverjum afskekktum norskum firði? eða kannski væri nær að búa til þetta nýja ísland í póllandi, þar sem stór hluti brottfluttra 2009 er af pólsku bergi brotinn. margir þeirra höfðu með sér bílana sína, því fyrir þá var ekkert að fá á gamla íslandi.
annars væri nú gaman að vita hvert var hlutfall brottfluttra af öllum íslendingum 1887 í samanburði við sama hlutfall 2009.
p.s. takk fyrir spjallið langa á fös - það var yndi.
luv

1:33 e.h.  
Blogger Ágústa sagði...

1. janúar 1887 bjuggu 72.449 sálir á Íslandi, 1. janúar 2009 var sama tala 319.368.

Takk sömuleiðis fyrir spjallið og ég myndi glöð flytja með þér til Póllands;)

Hildur endilega sendu mér spóluna;)

8:09 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim