Af því ég var svo heppin að fá pening frá ríkisstjórn Kanada til að ferðast yfir hafið og til baka þá berast mér annað slagið ávísanir í dollurum. Einni skipti ég hjá Arnrúnu í Landsbankanum á Selfossi og hviss bamm búmm ég átti krónur til að eyða áður en ég settist inn í Volvoinn.
Í morgun fór ég í bankann minn hér með kanadískan tjekka. Hver getur giskað á hvenær pundin verða komin inn á reikninginn minn? (Vísbending: Stekkjastaur verður kominn langleiðina til byggða)!
ps. næst ætla ég að skrifa eitthvað undursamlegt um heimsveldið fyrrverandi, ég lofa.
Í morgun fór ég í bankann minn hér með kanadískan tjekka. Hver getur giskað á hvenær pundin verða komin inn á reikninginn minn? (Vísbending: Stekkjastaur verður kominn langleiðina til byggða)!
ps. næst ætla ég að skrifa eitthvað undursamlegt um heimsveldið fyrrverandi, ég lofa.

5 Ummæli:
á afmælisdaginn þinn???
mega Íslendingar annars nokkuð kvarta yfir breskum bönkum...
rosa langt síðan ég hef séð ávísun, eins og ég hlakkaði alltaf til að verða stór og eignast ávísanahefti. man eftir að hafa verið pínu stressuð yfir því að þurfa að skrifa upphæðirnar í bókstöfum, fannst það eitthvað svo ruglingslegt.
6 heilar vikur!! og það finnst mér vera frágangssök hvers þjóðernis sem ég er!
Ég á ávísunahefti, ég skal senda þér blanka svo þú getir æft þig að skrifa í bókstöfum ;)
Er líka "the computer says no" fólk í bankanum þínum ?
Halli
Ég man einmitt eftir því fyrir tæpum áratug, ég veit ekki hvort það er eins í dag, að það tók undarlega langan tíma að skipta ávísun þó hún væri skrifuð í pundum.
Launatékkinn minn, ávísun á mínu nafni, lögð inn á minn reikning, í pundum, var sex daga að breytast í péníng sem ég gat greitt leiguna með. Má ég þá frekar biðja um þjónustulund Landsbankans!
Ji,er það nú þjónusta. Glatað!
sigga mos.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim