fimmtudagur, október 22, 2009

Það er kominn vetur í Aberdeen. Rigning, rigning, rigning og rok, rok. Nefsteyta dag eftir dag. Hafragrautur í morgunmat og lopapeysa og ullarsokkar á kvöldin. Ahhh hvað það er kósý. Klukkan fer á íslenskan tíma á sunnudaginn svo ég mun ekki þjást af þotuþreytu þegar ég kem heim um jólin.

Ég fékk póst frá breska skattstjóranum í gær. Hann bauð mér að borga skatt fyrir síðastliðið ár, ef ég vildi, því annars myndi ég ekki fá fullan ellilífeyri. Iss piss. Ég þygg ekki neitt af þessu skítapakki nema ókeypis heilbrigðisþjónustu, sjónvarpinu stel ég og annað sæki ég til Íslands. Eða hvað? Ætti ég kannski að þyggja þetta, verður til einhver peningur til að borga ellilífeyrinn minn á Íslandi?? æi ég nenni ekki að hafa áhyggjur af því strax. Það var eitt sem stakk í augu í bréfinu. (Er þetta rétt, stinga hlutir í augu sem stúf?) Konur í Bretlandi fara 5 árum fyrr en karlar á eftirlaun!!! WASS! Þær lifa samt lengur eins og alls staðar annarsstaðar í Evrópu - hvers vegna er það? Svo er talað um í fréttum að hækka eftirlaunaaldurinn um einhver ár til að spara en enginn nefnir að kannski væri rétt að konur myndu bara vinna jafnlengi og karlar. Það er lágt að heita laufa fjórir.

Anyways myndirnar eru úr daglega lífinu á Hunter Place. Ég með úrvaxna nýja lego-hárið og Chris með nýju gleraugun sín og þarna má einnig sjá nýja bollaparið sem ég keypti á flóamarkaði í Winnipeg. Uppáhalds.

6 Ummæli:

Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

iss piss mér finnst bara allt í lagi að konur fari fyrr á eftirlaun á meðan það er enn þá þannig að þær sinna heimilisstörfunum svo til einar þótt þær séu útivinnandi - segi ég og horfi á fyrirvinnuna mína dilla rassinum og taka til í eldhúsinu á meðan ég tölvast ;)

þið eruð svo sææææd! og bollaparið alveg sérdeilis gústulegt :)

1:10 e.h.  
Blogger Ólöf Halldora sagði...

ég er svo jafnréttislega sinnuð að mér finnst frekar ósanngjarnt að konur fái að fara fyrr á eftirlaun. kannski vilja þær vinna aðeins lengur og eiga aðeins meiri aur. Sorry fyrir tuðið en Gústa ég er mjög skotin í hárinu á þér, mér finnst það röff. Og bollastellið er mjög smekklegt´, ég væri sko alveg til í að koma í teboð til þín anytime.

10:04 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

Kannski lifa konur lengur af því að þær hætta að vinna fyrr.

9:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ægilega lekker bollastell. Mér finnst legóhárið bara fínt á þér. Ég væri til í að fara fimm árum fyrr á eftirlaun, þá væru ekki nema 22 ár í það.

kveðja til ykkar í Hunters Place

Halli

2:30 e.h.  
Anonymous Herdis sagði...

Eftirlaun eru ofmetin.
Og þegar við komumst á þann aldur er fullt eins líklegt að það verði til péníngur á Íslandi eins og hvar annars staðar.

Valdirðu þessa mynd af Chris af því þar sjást baaara nýju gleraugun hans? Svona til að draga athyglina að þeim?

ást,
Herdís

11:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Yndislegar "ekkifréttir" hjá þér Gústutetur eins og alltaf. Bollastellið er æði.
knús,
sigga mos.

7:46 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim