fimmtudagur, október 01, 2009

Það er eitt ár upp á dag í dag síðan ég byrjaði í doktorsnáminu, 1/3 búinn. Í tilefni af því ætla ég að vera jafnlöt og ég var þá nú.

Í kvöld ætla ég í bíóleikhús og sjá beina útsendingu úr þjóðleikhúsi Breta í bíó. Að sjálfsögðu Shakespear.
Á morgun fer ég svo til Englands í ráðstefnuleiðangur og til að heimsækja aldraða ömmu hans Chris. Ég er nú svo svakalega sjóuð í að tala við ókunnugt gamalt fólk að ég kvíði því sama og ekki neitt en það er verra með fyrirlesturinn sem ég lofaði að flytja klukkan þrjú á laugardaginn. óó ó.
En það er svo gott að vera komin heim að smá stress setur varla strik í reikninginn. Ég vil hvergi annars staðar vera en uppi í sófa eða rúmi að lesa og hugga mig, það er svo ágætt. Ég ætla bara að drífa þennan leiðangur af og svo sver ég að fara ekki spönn frá rassi fyrr en á aðventunni einhvern tíma.
Ætli það verði nokkuð í frásögur færandi fyrr en þá?

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Það þarf ekki að vera merkilegt til að vera í frásögur færandi þegar frásagnarhæfileikinn er eins og þinn. Hlakka til að lesa um ekki neitt...
bestu kveðjur frá Siggu mos.

4:54 e.h.  
Blogger augnpot sagði...

Heima er best!

10:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Maður verður nú að hafa eitthvað skemmtilegt að lesa þannig að þú ert nauðbeygð til að halda áfram skriftum.

Halli mob

2:44 e.h.  
Anonymous Hildur sagði...

Velkomin heim til þín, gaman að heyra í þér í gær. Var að lesa "fljótt" yfir mailin þín. Ég skal gera þetta fyrir þig, get það samt ekki í dag.
Hafðu það gott uppi í sófa, bið að heilsa chris

3:11 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim