Ólöf og Martin eignuðust yndislega dóttur í gær. Fjórða stelpan í vinahópnum frá því um áramót og við orðnar ofsalega margar! Rán er fædd í janúar, Emilía og Matthíasdóttir í febrúar, Karítas í mars og Martinsdóttir í maí. Ég segi ykkur þetta í óspurðum því ég komst yfir svo magnaða grein frá 1898 í Almanaki Ólafs S. Thorgeirssonar. Þar segir:

Til að spauga að
Eftir því sem eldgamlir stjörnuspádómar segja fyrir, eiga lyndiseinkunnir kvenmanna að fara eftir því í hvaða mánuði þær eru fæddar.
Stúlka, sem fædd er í janúar, verður hyggin bústýra, góðlynd, en hneigð til þunglyndis.
Sé hún fædd í febrúar, verður hún elskurík eiginkona og umhyggjusöm móðir.
Sé hún fædd í mars, verður hún léttlynd, lausmál og stælugjörn.
Sé hún fædd í apríl, verður hún kviklynd, einföld, en lagleg.
Sé hún fædd í maí, verður hún falleg og hamingjusöm.
Sé hún fædd í júní, verður hún stórlynd, léttúðug og giftist snemma.
Sé hún fædd í júlí, fíð sýnum, en mislynd.
Sé hún fædd í ágúst, geðgóð og nýtin og líkleg til að fá ríka giftingu.
Sé hún fædd í september, veður hún glaðlynd, hyggin og vel látin almennt.
Sé hún fædd í október, verður hún lagleg, glysgjörn og líkleg til að verða ógæfusöm.
Sé hún fædd í nóvember, góðgerðarsöm, blíðlind og góð.
Sé hún fædd í desember, sköruleg á velli, gefin fyrir nýjungar og prjál, óhófssöm.
þar hafið þið það! Eins gott að þetta er bara til að spauga að. Ég mun seint skrifa undir það að vera gefin fyrir prjál og óhófssöm og aldrei að ég sé sköruleg á velli.

5 Ummæli:
já eg skrifa alveg undir það að ég se geðgóð og nýtin :)..stefni á ríka gifingu... ;)
hehe, held að þetta sé spaug, samþykki seint að ég sé einföld :)
Gaman að lesa frá þér færslur úr vesturheimi. Hlakka líka til að fá þig heim í næsta mánuði :)
Veit ekki hvort hún Þórunn mín myndi kannast við að vera kviklynd og einföld.
Gaman að svona fornum fróðleik.
Kv. Halli
Blessuð Ágústa mín. Tek undir með síðustu ræðumönnum að við apríl-konur samþykkjum ekki kviklyndi né einfeldni. Er í heimsókn í Berlín, gamna mér við blogglestur meðan mamnskapurinn fær sér viðbótarlúr.
Kærar kveðjur,
Sigga mos.
Jaella. Ekki er öll vitleysan eins! Varð karlkynið útundan í þessari prýðisflokkun?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim