
"Þú ert sá annar Lyga-Loki er lastar það sem vel er gert"

Ég þykist vita að sum ykkar eru aðdáendur litla Bretlands, hérlenskra gamanþátta. Ein persónan í þeim þáttum er kona sem vinnur á bak við tölvu í einhverskonar stjórnsýslueiningu og segir jafnan þegar á hana er yrt "the computer says no". Því miður er þessi kona ekki uppspuni einn. Hún á sér fjölmargar fyrirmyndir í bresku samfélagi, konur og karla sem skilja alla heilbrigða skynsemi eftir heima þegar haldið er til vinnu en treysta þar blint á reglugerðir og tölvur. Í helgarblaðinu las ég t.d. um móður sem var neitað um vínflösku í matvörubúð þar sem dóttir hennar, sem var með henni, var ekki orðin 18 ára. Annari móður var bent á að 15 ára sonur hennar mætti ekki bera þann innkaupapoka sem innihélt vínflösku þar sem hann væri undir lögaldri.
O sei sei. Ég er nú alltaf spurð um skilríki eins og ég hef oft kvartað yfir á þessum vettvangi. Ég er því sífellt með ökuskírteinið á hraðbergi og skelli því framan í fólk í hvert sinn sem ég kaupi eitthvað sem ekki öllum er leyft, um leið og ég læt skína í appelsínuhúðina á upphandleggjunum og hristi þvottapokana vel. En computer says no uppákomur sem eru alls ótengdar unglegu andliti mínu á ég verr með að þola.
Þegar ég var að koma heim frá Kanada þá var ég þreytt vegna þess að ég missti 6 klukkustundir á leiðinni. Þegar ég dröslaðist út úr lestinni í Aberdeen og sá skína í nefbroddinn á Chris hinum megin við hliðið greikaði ég sporið og reyndi að setja lestarmiðann minn í hliðgarminn. Þá kom askvaðandi hávaxin kvenbredda og gargaði á mig "It says No". Ég skildi hana nú ekki og gáði hvort ég væri ekki örugglega með réttan miða og reyndi aftur og aftur gargaði konan "It says No" Ég sagði henni þá að þetta væri gildur miði og henni væri velkomið að skoða hann en þá sagði hún "It says NO" og þá færði ég mig yfir á næsta hlið. Þegar ég var komin heilu á höldnu réttu megin við hliðin sá ég að hliðið sem ég ætlaði í gegnum var bilað ERGO "It says no" - eða þannig.
Nú svo fór ég í klippingu í vikunni sem leið og þá neitaði konan að klippa mig eins og ég bað hana um að gera því að "that is not a haircut" eins og hún endurtók svo í sífellu. Við þráttuðum í um fimmtán mínútur en aldrei tókst mér að fá hana til að skýra út afthverju það sem ég lagði til væri ekki "haircut" og að mig langaði ekki í topp og tjásur. Á endanum gafst ég upp við fórum milliveginn, og nú segir Chris að ég sé eins og lego kona sem hárið hafi verið smellt á. Tóta kallar mig monsu. En það vex nú fljótt.

5 Ummæli:
ég panta mynd - finnst stór munur á monsu og lego og hreinlega verð að fá úr þessu skorið :)
ást á ykkur!
Já mynd takk. Lego hár getur verið allavega. Það er t.d til Lego Leia prinsessa.
kv.
Halli
oh, en mér finnst þú ofsa sæt með nýja hárið! - elsku monsan mín...
Nú er ég búin að sitja hér við tölvuna og horfa á aðfarir Þórhildar við að klippa Tobias og get ekki að því gert að mér finnst hún bara flink svona "algerlega ómenntuð" í þessum fræðum. Ég legg til að þú komir bara til Berlínar og látir klippa þig ef þessar "computersaysno" breskubreddur eru eitthvað að þrátta við þig um hvernig ÞÚ vilt líta út nýklippt.
Bestu kveðjur frá Berlín,
Sigga moster.
Mikið var þetta skemmtileg lesning gústa.
Endilega settu inn mynd af þér, ef þú ert eins og monsa máttu fá monsu peysuna mína lánaða :)
KV. Hildur
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim