fimmtudagur, maí 28, 2009


Jæja þá. Ég er komin heim til Skotlands þar sem allt sem áður var grátt er nú grænt. Mér finnst ofsalega gott að vera heima hjá mér og chillaxa. Held að aldurinn sé að færast yfir mig. En til setunnar er mér ekki boðið. Ég kem heim til Íslands að kvöldi annars í Hvítasunnu og verð í viku sunnan heiða og svo fer ég norður í land til að stækka þessa holu hér að ofan sem við opnuðum síðasta sumar. Það er yndislegt að vera í Mývatnssveitinni með mý í vitum og mold undir nöglum. Ég mæli með að þið setjist nú niður og skipuleggið hringferð um landið og komið við hjá mér!

Ef ykkur vantar einhverja nýlenduvöru sem ekki fæst á Íslandi þá hóið þið í mig, eins og er er eingungis te frá Jórvíkurskíri fyrir Tómasarhagann á listanum. Ég fékk flatkökur, seytt rúgbrauð, fiskbúðing, lifrarpylsu, upprúllaðar pönnukökur, rúllupylsu og randalín á Nýja Íslandi en hlakka til að gúffa í mig bæjarins bestu með kókómjólk á kreppubeygðum strætum Reykjavíkur þar sem mér skilst að útburðarvælið ómi hærra en nokkru sinni fyrr.

Sjáumst flest að vörmu

4 Ummæli:

Blogger Tóta sagði...

Rúllupylsa? mig rámar eitthvað í hana en þó ekki alveg viss. hlakka til að sjá þig, við erum hress sem kex :)

1:24 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

njóttu daganna með bóndanum í hosiló ljúfan mín. vildi að ég myndi hitta þig á gamla íslandi.

mmm hvað mig langar í flatköku með skólaosti og seytt rúgbrauð með sméri!

3:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hlakka til að hitta þig í næstu viku. Þú þyrftir helst að koma með áfengi, tóbak og bensín þar sem það var allt að hækka í verði í þessum töluðu. Annars kemur þú bara með sjálfa þig það nægir og gott betur:)
kv. Hildur

2:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Blessuð Gústutetur, ósköp verður gaman að hitta þig að nýju! Ég held að kreppuræksnið bíti lítið hér á Bakkanum, enda ekki í margt að bíta. Það eina sem hún hefur gert mér - það hefur hækkað ískyggilega hjá mér skítastuðullinn, kannski ómeðvitað að spara þvotta og þvottaefni, ekki gott að segja. En það er rétt að hér fæst ekki Melroses te í rauðum umbúðum. Ég á reyndar enn í fáeinar könnur.
Hlakka til að sjá þig.
sigga mos.

12:27 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim