Það kom kuldakast, hitastigið fór niður fyrir 5°C og flugan fór í frí. Uppgröfturinn gengur framar vonum, ef mér skjátlast ekki er landnámslagið að gægjast fram í holunni og 2000 ára Laxárhraunið þar undir. Ekki slæmt. Í tilefni dagsins brunaði ég á Húsavík og fékk mér bland í poka og kókómjólk. mmmm.
Þorbjörg og Jón komu í heimsókn í dag. Það var sérstaklega skemmtilegt að fá gesti og ítreka ég hér með boð mitt til hvers sem vettlingi og ökutæki getur valdið að kíkja við á Skútustöðum 3.
Besti fundurinn hingað til er brjálaðislega flott bronsplata um 2x2 cm stór sem kom upp úr holunni fyrir neðan gjósku úr Veiðivötnum frá 1477 og líkega ber upphafsstafi Þórunnar ríku sem bjó á Skútustöðum í denn. Hún var kjarnakvendi. Kannski ég setji inn mynd af því við tækifæri.
Á morgun flýg ég suður í nafnaveislu á Túngötu 14 og til Jónsmessufagnaðar á Garðstúni og að Stað, ég vona að ég sjái ykkur sem flest,
ást í poka

1 Ummæli:
"brjálaðislega flott bronsplata" - fyndið!
Takk fyrir góðar móttökur á Skútustöðum og skemmtilegt hitterí í nafngiftarveislu Ronju Kristínar.
Gangi þér vel í meiri greftri, skráningu skv. kúnstarinnar reglum, rauðvínsmarineringu og töpuðu flugustríði.
Ást í poka til þín ljúfan!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim