Bestu kveðjur frá morgunverðarhlaðborði í Suður-Þingeyjasýslu. Hér er afskaplega gott að vera. Hér þarf ég aldrei að elda, vaska upp né smyrja nesti, skipta á rúminu eða þrífa klósettið. Fyrir vikið er ég mjög afslöppuð og vel haldin og laða að mér mýið sem væri ég mykjuskán. Alls staðar smjúga þessar litlu flugur og bíta mig og sjúga úr mér blóðið, úr lófum, af handabökum, kálfum, handleggjum, mjó og breiðbaki og sérstaklega hrifnar eru þær af andlitinu á mér, enni og augnsvæði ( en ég þyki einmitt hafa mjög stórt augnsvæði skv. Hildi og Tótu).
Uppgröfturinn gengur mjög vel. Í gær grófum við okkur í gegnum gjósku úr Veiðivatnagosi frá 1717 og erum því hægt og sígandi að nálgast miðaldir. Fundapokarnir eru farnir að þyngjast, flestir fullir af beinum úr spendýrum, fiskum og fuglum en nokkrir með leirkerjabrotum, hnöppum, tölum og krækjum.
Í dag ætla ég að fara í búð á Húsavík og setja póstkort til Þýskalands í póstkassa svo ætla ég að sitja og horfa út á Skjálfandaflóa með kaffi og með því.
Ég læt ykkur vita hvernig þetta endar allt saman ...

2 Ummæli:
"... sem væri ég mykjuskán"
þetta er æðisleg setning :)
Ég var í langlínu saumó með Ólöfu og Þorbjörgu á skype í dag. Hlakka til að hitta þig þar líka.
Gangi þér vel í greftrinum
..... er ekki alveg að koma framhald ég er svo óþolinmóð.
sigga mos.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim