mánudagur, september 21, 2009


"Helvíti smellið kar sem þú ert á!", varð einum af nýju vinum mínum í Manitoba að orði þegar hann skellti hækjunum sínum inn í bíl og settist í farþegasætið. Það er búið að vera alveg dæmalaust blíðviðri í Kanada og hitamet septembersmánaðar slegin dag eftir dag. Allt iðar af lífi og það er ekki laust við að hljóðin sem heyrast í háu grasinu við Íslendingafljót fari aðeins fyrir hjartað á mér. Þar smellir í sífellu í einhverri engissprettutegund, froskar kvaka og drekaflugur suða. Ég er þó aldeilis búin að herða upp hugann og á smellna karinu þeysti ég á milli sveitabæja með jarðvegsborinn í annarri og málband í hinni, sveitt sem bakaradrengur og með sundurbitna útlimi.
Það hefur verið alveg hryllilega skemmtilegt í þessari ferð. Ég synti í Winnipeg vatni og baðaði mig í sólinni, sigldi frá Hnausahöfn og út í Breiðuvík og drakk óteljandi kaffibolla á Ömmu kaffi. Ég svaraði spurningum, s.s. hver væri munurinn á dordingul og könguló á íslensku og hvað fólk sem skrifar bækur væri kallað og svo spurði ég enn fleiri spurninga í staðinn. Ég er búin að sjá dádýr á beit og hvít höfðaðan örn svífa yfir hræi og svo sá ég líka skunka og þvottabirni (reyndar dauða við vegkantinn). En þrátt fyrir alla þessa skemmtun og nýnæmi þá hlakka ég alveg fjarskalega til að koma heim til Skotlands á miðvikudaginn. Jeremías á spariskónum hvað það verður skemmtilegt!
Við heyrumst þegar ég er komin þangað
Gústa í Kanada

2 Ummæli:

Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

Rosalega hefur verið skemmtilegt hjá þér í Kanada! Heyri í þér bráðum og fæ fleiri sögur. Og sjæse hvað ég hlakka til jólanna!!

5:29 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

fyndið skilti hjá þeim frank og terry :)

10:35 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim