Jé dúdda mía
Það er allt á kafi í snjó í Englandi. Búið að loka fleiri hundruð vegum, dómshúsum og flugvöllum og fólk húkir bara heima með heitt súkkulaði og kex (ímynda ég mér). Ég ætla rétt að vona að flestir eigi efni á að kynda húsin sín svo fólk frjósi bara hreinlega ekki í hel. Fullur gámur af íslenskum lopaflíkum kemur ábyggilega að góðum notum í svona árferði. Eeeeen það er ENGINN snjór í Aberdeen og mér finnst ég illa svikin! Að maður skuli ekki fá a.m.k. 5 cm lag af dúnmjúkri fönn fyrir að hírast hér á norðausturströnd Skotlands þegar Lundúnabúar hoppa í yfir 20 cm er algjört svindl!
Kannski ef hann fer að skafa all hressilega með sunnanátt þá fýkur eitthvað af þessu hingað norðureftir. Annars ætla ég rétt að vona að það verði orðið snjólaust þegar ég ætla að fljúga heim í lok mánaðarins, ég yrði alveg miður mín ef ég yrði veðurtept í Englandi. Ússala! Það væri sko svekkelsi.

1 Ummæli:
ég held þú ættir bara að gleðjast yfir því að vera ekki innifennt og í þörf fyrir stóra skóflu. Það er ekkert skemmtilegt.- Annars er snjórinn hér afskaplega hæfilegur og fallegur þessa dagana.
kv.
sigga mos.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim