þriðjudagur, febrúar 03, 2009

Ég bloggaði nú bara síðast í gær en ég bara verð ég að segja ykkur frá því að spaghettíið stóð næstum í mér þegar ég hlustaði á kvöldfréttirnar í gær á Channel 4. Singer og Friedander gæinn var í viðtali og sagði að yfirmenn Kaupþings hefðu ekki verið hæfir til að reka banka og það ætti nú við flesta sem komu að rekstri íslenska fjármálageirans. Þeir gætu ekki rekið "fish and chips shop" hvað þá alþjóðlegar bankastofnanir! Hann hefði varað við þessu en enginn hlustað og svo voru bara allri reknir innan bankans sem voru að benda á þetta og ég veit ekki hvað og hvað. Fyrr má nú aldeilis fyrrvera víkingahátturinn - en ég var samt pínu móðguð. Heilhveitis ananas!!! (eins og Guðjón Emils myndi segja).

Svo sárnaði mér líka smá þegar Brown varð spurður að því í viðtali hvort London væri Reykjavík on Thames og hann bara skellti upp úr og uppskar hlátursrokur í sal. Ég er alveg á fremsta hlunn með að skrifa honum bréf og segja að ef London væri líkari Reykjavík þá kæmist fólk kannski leiðar sinnar þrátt fyrir smávægilega ofankomu!!

Það er sko af sem áður var að Ísland og Reykjavík kveiki með fólki exótískar hugmyndir um bókhneigða þjóð með ofgnægð tónlistarhæfileika. Meira að segja var sagt frá því að Íslendingar drykkju manna mest af kóki í blaðinu um daginn. Er þetta ekki bara einelti??

bless í baði,
gústa

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvurslags eiginlega er þetta, þú verður að fara að taka upp hanskann fyrir okkur gústa mín.

7:20 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

já þetta eru svo sannarlega erfiðir tímar fyrir meðvirka þjóðarsálartetrið. Ég las fyrir helgi ítarlega grein um andrúmsloftið á Íslandi í fylgiblaði die Zeit sem bar hinn huggulega titil: Ris og fall þjóðar.
Ég tók þetta svo nærri mér að ég hætti ekki að þræta við Tobi fyrr en hann samsinnti því að orðalagið "fall þjóðar" væri rógburður og lygi - enda töpuðum við hvorki tungu okkar eða menningu þótt við skuldum svoldið af peningum. Hlandskotans.

8:11 f.h.  
Blogger Tóta sagði...

Bæði breskar og þýskar áróðursvélar farnar af stað - eins gott að þið frænkur haldið uppi vörnum. ég held að þeir ættu bara að skammast sín - við erum friðelskandi fólk sem kann bara ekki að fara með áfengi og peninga. Drekka mest af kóki, vissi að það ætti eftir að koma okkur í koll!

12:16 e.h.  
Blogger Rut sagði...

láttu þá heyra það!
ekkert nema einelti.

10:11 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim