Fleiri litlar myndir af daglegu lífi í Deeninni. Þið getið klikkað á þær ef þið viljið sjá okkur í meira návígi. Christopher varð 30 ára á þriðjudaginn sem var tilefnið af gælstum gulrótarkökubakstri og kökuáti í morgunsárið. Mér finnst ég vera orðin hellings gömul fyrir vikið. Ég man eftir 30 afmælinu hans pabba eins og það hafi verið í gær og hann var sko algjör kall þá og mamma og pabbi full fullorðin. Í tilefni af afmælinu ætlum við að eyða viku í þessu húsi:
með vinum okkar frá Bristol, að borða, spila og súpa. Við erum búin að vera ofsalega stressuð yfir þessu alla vikuna þar sem mér varð heldur betur að ósk minni um ofankomu. Það snjóaði og snjóaði og snjóaði í Jórvíkurskíri á bústaðinn og hér hjá okkur og þar sem það virðast eingöngu vera til 2 snjóplógar á allri eyjunni og ekki eitt einasta nagladekk var allt kolófært. En það er hætt að snjóa fyrir sunnan (snjóar enn hér) og búið að ryðja svo við ættum að komast á leiðarenda. Við munum bruna til Darlington með lestinni þar sem Bristol liðið bíður okkar og skunda svo í bústaðinn, kveikja upp í arninum, rauðvín í glösin og og og og
Vona að þið eigið góða helgi gullin mín og ánægjulega viku, það fer nú heldur betur að styttast í að ég hitti ykkur á kreppulandi!

7 Ummæli:
vá hvað þú ert myndarleg! ekki bara í bakstri og hekli (í alvöru geðveikt flink!!) heldur tekur þú þig svo vel út með nýja hárið. mér hefur alltaf fundist fara þér svo vel að vera með topp.
gangi ykkur vel að komast í bústað, ef þið festist í skafli verðið þið bara að doka og doka og doka og vona að það verði á vegi ykkar einn Finni sem getur bjargað ykkur eins og okkur forðum :)
fullt af ást til ykkar!
p.s. ég var að þvo heimsins minnstu teygjulök á vöggudýnuna, jedúddamía mér finnst eins og ég sé bara í dúkkuleik :)
En hvað þetta verður gaman hjá ykkur!! Síðbúnar afmæliskveðjur til Chris; þú smellir á hann kossi frá mér. Hlakka ógó mikið svo að fá þig heim til Kreppistan.
já og .... mikið líturðu vel út beibí...frh.
Hææ, mikið lítið þið vel út bæði tvö. Hafði það ofsa gott alla vikuna og góða skemmtun. Komið jafnsæt heim og þið fóruð að heiman :)
Til hamingjumeð afmælið Chris og til hamingju með kallinn Ágústa. Vonandi hafið þið það gott í kotinu sem þið eruð að fara í.
Halli
þú ert ekkert smá myndarleg bæði með nýja lookið og í heklunu, rosa flottur bolur, viltu ekki hekla einn svona fyrir mig;)
Til hamingju með Chris, bið að heilsa honum
kv.Kristín í DK
Geggjað flott klipping sæta Ágústa! Til hamingju með manninn - þið eruð svo myndarlegt par. Góða skemmtun í rauðvínsbaði!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim