föstudagur, mars 27, 2009

Það entist ekki lengi vorið hjá mér. Það fór á mánudaginn aftur suður í höf og eftir situr blautur og kaldur síðvetur. Mars er senn á enda og klukkan fer fram um eina klukkustund á sunnudaginn og þá trúi ég nú ekki öðru en vorið láti sjá sig á ný. Svo kemur apríl og með honum Herdís í helgarferð og ég hlakka mikið til að taka á móti henni. Um mánaðamótin fæ ég líka smá aur í veskið og það er alltaf skemmtilegt. Það fyrsta sem ég ætla að kaupa mér er rafmagn því nú er mælirinn að verða tómur og það er ekki gaman að vita af því að allt geti slegið út þá og þegar. Þetta er nú meiri kastarholubúskapurinn hjá mér.

Ég er að fara í surpræs partý í kvöld hjá tékkneskri bekkjarsystur Chris. Ameríski maðurinn hennar er að skipuleggja það og eigum við öll að vera komin heim til þeirra fyrir klukkan níu þegar afmælisbarnið kemur af kóræfingu. Ég hef aldrei farið í svona surpræs partý áður og er bara pínu spennt. Ég ætla að panta að fela mig á bak við gluggatjöldin, það hefur alltaf verið uppáhaldsfelustaðurinn minn því þá þarf maður ekkert að kúldrast og getur beðið og beðið von úr viti. Chris hljóp niður í bæ í rigningunni og keypti Laxness handa henni í afmælisgjöf. Maður verður nú að spyrna við fótum og reyna smá jákvæða landkynningu á þessum síðustu og verstu. Myndir Laxness af landi og þjóð eru kannski ekki þær jákvæðustu en hann er nú Nóbels skáld og allt það.

Ég er búin að lesa svo mikið af vestur-íslenskum bréfum að ég er alveg komin með þetta fólk á heilann og dreymir ekki annað en kanadíska greniskóga, uxapör og cör, járnbrautir og gufuvélar en það er nú margt leiðinlegra en það. Eftir um það bil mánuð fæ ég svo að líta Nýja Ísland augum þegar ég fer í fyrstu rannsóknaferðina til Kanada. Það verður skemmtilegt. Kannski ég geti baðað mig í Winnipeg vatni eins og þetta frændfók ykkar árið 1914.
Ég skal flytja með mér kveðju ykkar allra

3 Ummæli:

Anonymous rut sagði...

eins gott að muna eftir þessari klukkubreytingu, en ég virðist e-n veginn alltaf gleyma henni... afar hvimleitt.
mér finnst þessi sundmynd algjörlega frábær... allir svo voða mikið að sperra sig og montnir e-ð :)
góða skemmtun í surpræs partíinu!

7:35 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Blessuð Ágústa mín. Það er alltaf jafngaman að lesa bloggið þitt. Ferðu beina leið til Kanada frá UK eða kemur þú á klakann fyrst?
Vonandi birtist nú vorið hjá þér með flýttri klukku.
bestu kveðjur,
sigga mos.

9:19 e.h.  
Anonymous hildur sagði...

Hvenær ertu að fara til Kanada? hvenær kemur þú svo heim? Fæ ég vinnu hjá þér við að keyra hjólbörur í sumar?

8:59 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim