föstudagur, mars 20, 2009

Það er 14 stiga hiti og sól í Aberdeen og það er föstudagur - gæti það verið betra?

Kannski ef ég gæti teleportað ykkur hingað frá Íslandi, Danmörku og Þýskalandi og smellt ykkur niður í grasagarðinum sem er rétt hjá skrifstofunni minni! Þá gæti ég hitt Karitasi Tobiasdóttur litlu sem fæddist á miðvikudaginn og auðvitað alla hina ungana. Það væri ekki leiðinlegt. Ég er nefninlega orðin super móður systir þ.e móðursystir og systurdóttur móðursystir (ég varð reyndar bæði árið 1994 þegar Ívar Þór og Dagmar Björk komu í heiminn, en þá var ég nú bara 13 og alvöru móðursystur geta nú ekki verið 13 ára). Nú er ég hins vegar komin hátt á þrítugsaldurinn og get hreinlega ekki beðið eftir að fá að skemma uppeldið á þessum litlu snótum.

Sígarettur, brennivín, neftóbak og sherry, það verður alltaf í boði þegar þær heimsækja mig. Núna get ég líka loksins farið að ganga í hörfötum með stórar nælur í barminum og klunnaleg hálsmen (eins og Tóta og Hildur eru búnar að ákveða fyrir löngu að ég verði) og lyktað eins og gömul bók eins og svoleiðis hörklæddar móðursystur eiga að vera. Ég þarf bara að hrukka mig aðeins í framan með einhverju góðu meðali og verða gráhærðari (ég fann amk 5 grá hár á höfði mínu á liðnum vetri svo það ætti ekki að verða erfitt), svo safna ég hári og bind það í snúð og sting handútkornu spjóti með höfðaletri í gegn. Ofsalega verður þetta skemmtilegt!!

Góða helgi gærurnar mínar ég er hlaupin út í vorið

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Mikið væri ég nú til í að koma til þín í vorið :) Ætlarðu semsagt að vera reið kona í jarðlitunum með stórt hálsmen, þetta vissi ég :)

3:16 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

hahah hljómar mjög vel syssa en ég held að þú sért að stefna í svipaða átt óafvitandi- nefnilega skrýtna frænkan sem er í heimagerðum hekluðum fötum og reykir upprúll og drekkur te. svo skrýtin að mamma er hætt að þekkja þig á flugvöllum :) Reyndar þarf ósköp lítið til til að teljast smá "skrýtin" á klakanum!
öfunda þig feitt af vorinu - hér er snjór og blíða.

1:57 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

ég elska að lesa bloggið þitt!

Karítas hlakkar mikið til að kíkja í sherryglas með þér - vona samt að þú eigir eftir að tæma nokkur með mér áður en til þess kemur :)

Gangi þér vel að hrukka þig!

ást og kossar

2:51 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim