Kæru elskulegu gömlu vinir,
Nú vil ég aftur sýna lit og skrifa nokkrar línur. Ég hef verið á Íslandi hver fyrir ég hef verið svo seinlát að skrifa. Ég er komin heim til Aberdeen aftur fyrir Herrans mildi. Ég veit varla hvað ég ætti helst að segja, sem skemmtilegt mætti þykja.
Við Chris komumst í bústaðinn í Jórvíkurdölum einum degi of seint þegar snjó var farið að leysa. Við þurftum því að gista eina nótt hjá fínni frænku hans sem býr í Upper Poppleton og rekur rúm og morgunmatsstað. Hún var ofsalega góð við okkur en ég gaf henn næstum selbita í augað þegar hún stillti mér upp fyrir framan heimilistölvuna og vefmyndavélina og skypaði á dætur sínar í London svo við gætum öll hist.
Það var þrælgaman í bústaðnum fyrir utan kannski tvennt. Í fyrsta lagi komu hundruð dauðra kanína undan snjónum og gerðu rómantískar gönguferðir að hryllingsgönguferðum og í annan stað var mjög takmarkað af heitu vatni í húsinu. Ég komst því aldrei í frístandandi baðið sem ég var búin að vera full yfirlýsingargóð og roggin með. Það var hins vegar nóg af rauðvíni, góðum mat og skemmtilegu fólki til að dansa með í Dölunum og var fyrir öllu.
Einhver mannvitsbrekkan stakk höfðinu út um gluggann á lestinni á leiðinn heim og fékk trjágrein í ennið svo okkur seinkaði talsvert og misstum af tengilestinni frá Edinborg. Það gerði svo sem ekki mikið til og ég væri ábyggilega löngu búin að gleyma því ef mér fyndist þetta ekki svona góð saga.
Svo fór ég til Íslands og hitti ykkur mörg. Það var enn skemmtilegra. Ég hitti fjögur börn sem ekki eru orðin hálfs árs gömul í fyrsta sinn og var meira að segja við skírnina hennar Ránar Stefánsdóttur. Svo heimsótti ég nokkrar óléttubumbur og vann smá, las smá, drakk nokkra bjóra á öldurhúsi smá, fór í Kolaportið og á bókamarkað í Perlunni. Sei, sei hvað þetta er skemmtileg saga!
"Heilsiði öllum mínum frændum og vinum með kærleikskossi, sem kveðju minni vilja taka. Ég hef þrengjandi tilfinningu fyrir þá að verða að lifa í því kalda, hrjóstruga og ávaxtarlausa landi og lifa sjálf í því frjósamasta og ávaxtasamasta sem máske er að finna á heila jarðhnettinum" (eða ekki).

2 Ummæli:
já takk fyrir komuna, það var mjög gott og gaman að hafa þig þessar fyrstu vikur með lillu og við söknum þín öll mjög mikið strax.
Elsku Ágústa, ég er með tárum af söknuði!! Hugga mig þó við það að eiga séns á einhverjum ánægjustundum með þér í sumar. Ber þér kveðju frá bónda mínum og ómálga syni, hverjum hlotnast mun nafn næstkomandi sunnudag!! ;) (guð hvað ég er áhrifagjörn)
p.s. hann var líka mjög glaður að sjá þig, ég er alveg viss um það!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim