Emigrantar Emigrantar Emigrantar
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item247932/
Ég er aldeilis með fingurinn á púlsinum núna. Ekki hika við að hafa samband ef ykkur langar að fræðast um flutninga til Vesturheims í lok 19. aldar til að koma í veg fyrir að sömu mistökin endurtaki sig og þið endið í tómu volæði upp á Norðmenn komin með bólusótt og læti.
Ég mæli með að einhleypir karlar fari fyrstir og verði sér út um smávegis aur og að konur og börn fylgi í kjölfarið. Það er nauðsynlegt að hafa með sér harðfisk til að naga fyrstu dagana á meðan fólk venst kanadíska matnum og smíðatól og ullarföt munu verða fólki til góða ...
"[það] kemur sjer vel, að flytja með sjer, enda hvar sem maður sezt að í N-Ameríku, er einkum : S æ n g u r f a t n -a ð u r , h v e r s d a g s k l æ ð n a ð u r (ekki ræflar) s t f gvj e l og s k ó r , sokk a r og n æ r f ö t , I o ð s k i n n a— föt — og h ú u r , b o r ð b ú n a ð u r (ekki samt leir eða glas-töi) s t í f a ð töí (af því tilbúningurinn og stífunin er svo dýr) s a m t a l l t s i l f u r - og gullstáz ." (Tímaritið Ameríka, 2. tölubl., 1874)
Þar hafið þið það. Enga ræfla en allt silfur og gull stáss. Sjáumst í Kanada!

3 Ummæli:
Heyrðu já, eins og staðan er akkurat þessa stundina væri kannski bara sniðugast fyrir okkur að flytjast til Kanada, sjáumst þar :)
Þetta er æðislegt! Þú ert að fást við gullgröft þessa dagana sýnist mér :)
Ja-ella!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim