Í útilegu ... la la la laaaa (kann einhver þennan texta)
Já ég ætla að skella mér í útilegu um helgina til Devon. Spáin er nú ekkert sérstaklega góð en það er algjört atriði að komast í útilegu áður en við komum heim um miðjan maí. Það er bara eitt vandamál við eigum enga svefnpoka. Fermingarpokinn minn er uppi á fyrstikistu inni í búri hjá ma og pa og pokarnir hans Chris (sem eru by the way eins og golupokinn frá Háeyrarvöllunum) eru læstir ofan í kistu sem enginn er af lykillinn - en það reddast.
Við erum semsagt að koma heim eftir um þrjár vikur og ætlum að búa á Íslandi í sumar. Chris er búinn að segja upp í vinnunni og íbúðin er komin á sölu. Við erum meira að segja búin að leigja litla geymslu til að geyma búslóðina í, ótrúlega skipulögð.
Þorbjörg og Jón eru að gifta sig í dag og ætla svo að slá upp veislu á laugardaginn. Ég gæfi mikið fyrir að getað samglaðst þeim og hlakka gríðarlega til að skála með þeim, svona eftir á , í maí!!
Elsku Þorbjörg og Jón, til hamingju með daginn!!!!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim