Það er búið að rigna hvern einasta dag þessa árs. Veðurspáin á rás tvö tilkynnir kafaldsbyli og stormviðvaranir en á BBC4 eru bara flóðviðvaranir daginn inn og daginn út. Rigningunni hafa þó fylgt hlýindi sem ég verð síðust til að kvarta yfir. Þess eru dæmi að ég hafi jafnvel horft á heilan sjónvarpsþátt á stuttermabolnum einum klæða fyrir ofan mitti. Hækkandi hitastig má líka sjá á öðru en klæðnaði heimilismanna. Hnetubrúna sjampóið mitt í glærutúpunni sem skildi sig og kristallaðist í lok desember hefur aftur náð sínum rétta lit - jibbý kóla.
Svo virðist sem Stúart og fjölskylda hafi bara verið hér í jólafríi því ég hef ekki séð neinar mýs á þessu ári. Ætli þær séu ekki úti að hoppa í pollum.
Svo virðist sem Stúart og fjölskylda hafi bara verið hér í jólafríi því ég hef ekki séð neinar mýs á þessu ári. Ætli þær séu ekki úti að hoppa í pollum.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim