mánudagur, mars 03, 2008

Nú er ég hætt öllu væli, ja hérna hér hvað ég get aumkað mér yfir mörgu. Nú ætla ég að segja ykkur hvað er frábært að búa akkúrat þar sem ég bý, með mýsnar undir gólfborðunum og eiturlyfjaneytendurnar í bakgarðinum.

Þegar ég sit við skrifboðið mitt horfi ég út um risastóran stofugluggann í georgíska townhouse-inu mínu út á götu. Beint á móti er grínaraklúbbur þar sem menn standa upp á sviði hvert kvöld og segja breska brandara. Þar við hliðina er svo pöbb sem ber hið skemmtilega nafn pípan og inniskórnir sem lýsir ágætlega stemningunni innan dyra. Svo er norður-afrískur veitingastaður, indverskur veitingastaður og tapas veitingastaður.

Bak við hús er svo brött brekka og í brekkunni er snoturt kaffihús fullt af fólki sem er með húfu innandyra og við efst í brekkunni er svo minn uppáhalds pubb í allri Bristol. Þar er nefninlega arinneldur og skrafl, trivial og dominos og ég veit ekki um betri stað til að eyða köldum sunnudagseftirmiðdögum. Já ég á nú ekkert svakalega bágt.

Ef ég geng í 10 mínútur upp veginn eru fullt af börum, kaffihúsum og búðum sem versla með notuð föt - vilji ég heldur vera fyrsti eigandi klæðanna (t.d. nærbuxna og svona) geng ég 10 m niður veginn og þar er HogM og Topshop og Primark og ég veit ekki hvað og hvað.

Monti monti mont,

(annars var veskinu mínu stolið á laugardaginn ef ykkur er þetta grobb ekki að skapi getið þið huggað ykkur við það)

sjáumst um helgina x

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim