Ég er löngu flutt. Við Chris bjuggum tvö í um 2 mánuði og þá fluttu nokkrar mýs inn. Ég sá eina fyrst í gær og varð skelfingu lostin. Eftir að ég hafði staðið uppi í rúmi í nokkrar mínútur komst ég að því að það væri lítið sem ég gæti gert í málunum svo ég fór í gönguskóna mína og arkaði aftur inn í stofu. Svo var það í gærkveldi þegar ég var búin að koma mér vel fyrir í sófanum og var að horfa á Oliver Twist að músarskömmin arkaði aftur yfir stofugólfið. Ég varð smeik á nýjan leik en ekki eins banginn og áður - eftir allt saman þá átti Oliver nú meira bágt en ég.
Músin sté aftur á stokk áðan, hún sat á miðju stofugólfinu og nagaði gólffjalirnar eins og hún ætti lífið að leysa, ég stökk af stólnum og sá á eftir henni undir gólfið, á milli tveggja gólfborða. Ha ha hugsaði ég með mér og skelti plötu yfir rifuna. Sæl og glöð hélt ég áfram að baka fyrstu og einu sortina fyrir þessi jól. Þegar ég svo brá mér inn í stofu til að skifta um lag á fóninum góndi músin (eða kannski önnur mús) á mig úr sófanum. HÚN VAR Í SÓFANUM!!! þá hringdi ég í mömmu.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim